Aðkallandi viðgerðir á Kópavogskirkju

Kópavogskirkja stendur á Borgarholti og blasir við mörgum, sem leggja leið sína um bæinn. Kirkjan var lengi vel eina kirkjan í Kópavogi og liggja rætur margra til hennar enda tákn Kópavogs og í merki bæjarins. Kirkjan var vígð árið 1962 og þarf á verulegri viðgerð að halda meðal annars á steypu, þaki og gluggum. Einnig þarf að mála kirkjuna að utan og innan. Steindir gluggar Gerðar Helgadóttur, sem eru einstök listaverk liggja undir skemmdum. Vegna erfiðar fjárhagsstöðu hefur Kársnessókn ekki bolmagn til að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir. Unnið hefur verið að áætlun um þann kostnað, sem hlýst af því að ljúka verkinu og eru það um 12 milljónir króna. Kópavogskirkja leitar til sóknarbarna og velunnara um aðstoð. Á fundi Bæjarráðs Kópavogs 15. maí síðastliðinn var samþykkt að styrkja Kársnessókn við framkvæmdina.

Söfnunarreikningur vegna verksins er: 0536-26-630000, kennitala:691272-0529

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Fleiri fréttir

Stórskemmtileg leiksýning fyrir yngstu kynslóðina

Leikfélag Kópavogs sýnir um þessar mundir barnaleikritið Ferðin til Limbó eftir Ingibjörgu Jónsdóttur (1953-1986) sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu í janúar 1966. Leikritið byggir á barnabókinni Músabörn í geimflugi eftir sama

Er svefn besta verkjalyfið?

Svefn er ein af grunnstoðum góðrar heilsu ásamt góðri næringu, hreyfingu og vellíðan. Þegar við sofum notar líkaminn tímann til að endurnýja sig og undirbúa okkur fyrir næsta dag. Svefn