Auglýsing

„Gamaldags aðferðir í anda austurþýzku leyniþjónustunnar Stasi, til þess að stunda persónunjósnir um kjósendur í Kópavogi.“

Yfirlýsing frá umboðsmönnum Næstbestaflokksins í Kópavogi:

Á fundi kjörstjórnar Kópavogs í dag óskaði umboðsmaður framboðs Sjálfstæðisflokksins, Bragi Michaelsson eftir því að fá afhenta meðmælendalista annarra framboða í Kópavogi. Engar skýringar eða röksemdir fylgdu þessari beiðni umboðsmanns Sjálfstæðisflokksins.

Umboðsmenn Næstbestaflokksins hafna því að kjörstjórn Kópavogs afhendi Sjálfstæðisflokknum þau til skoðunar. Undirrituð líta á meðmælandalista okkar sem eign framboðs Næstbestaflokksins til tímabundnar notkunar fyrir kjörstjórn á meðan yfirferð gagna stendur yfir. Kjörstjórn Kópavogs hefur nú yfirfarið meðmælendalista Næstbestaflokksins og úrskurðað framboðið hæft. Umboðsmenn Næstbestaflokksins óska eftir því að fá afhent frumrit af meðmælendalistum okkar framboðs þegar kjörstjórn hefur lokið notkun þeirra og að rafrænum gögnum þar að lútandi verði eytt sömuleiðis. Við treystum kjörstjórn til að halda trúnað varðandi upplýsingar sem í þessum gögnum kunna að finnast.

Beiðni Braga Michaelssonar, umboðsmanns Sjálfstæðisflokksins er í hæsta máta óeðlileg að okkar mati. Í fyrsta lagi lýsir hún miklu vantrausti á störf kjörstjórnar Kópavogs og gefur í skyn að stjórnarmenn kjörstjórnar séu ekki starfi sínu vaxnir. Í öðru lagi leyfum við að efast um að tilgangur beiðnar Braga Michaelssonar sé ærlegur heldur séu hér á ferðinni gamaldags aðferðir í anda austurþýzku leyniþjónustunnar Stasi,  til þess að stunda persónunjósnir um kjósendur í Kópavogi.  Í þriðja lagi er nánast einsdæmi í seinni tíð að stjórnmálaflokkar óski eftir að fá að sjá meðmælendalista frá öðrum framboðum. Það er hluti af hinni gömlu og úreltu pólitík sem við héldum að væri liðin undir lok. En hún virðist lifa góðu lífi innan fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þessa dagana.

Það er mikilvægur  réttur okkar að geta stutt við hvaða framboð sem við viljum með undirskrift á meðmælendalista og þannig stuðlað að lýðræðislegri þáttöku í stjórnmálum.  Þeir meðmælendur sem skrifuðu undir stuðning við framboð okkar gerðu það í þeirri góður trú að trúnaður væri virtur.  Við álítum að umræddir meðmælendalistar eigi að vera milli hvers framboðs fyrir sig og kjörstjórnar og hvað á þeim stendur komi hvorki Braga Michaelssyni né Sjálfstæðisflokknum við.

Ásdís Helga Jóhannesdóttir og Hjálmar Hjálmarsson, umboðsmenn framboðslista Næstbestaflokksins í Kópavogi.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,