Geðræktarhús í Kópavogi

Í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdagsins, 10. október s.l, kynnti Kópavogsbær að Hressingarhælið í Kópavogi verði nýtt í þágu lýðheilsu og geðræktar. Stefnt er að því að þar verði haldin námskeið og erindi á sviði geðræktar til að efla andlega heilsu íbúa en í fyrstu verði áhersla lögð á að vinna með börnum og ungmennum. 

Í tillögu stýrihóps um lýðheilsu kemur fram að brýnt sé að leggja rækt við andlega heilsu barna og ungmenna en nýleg skýrsla Unicef sýnir til dæmis að styrkja þurfi félagsfæri íslenskra ungmenna. Þá er andleg vanlíðan ein helsta ástæða skertra lífsgæða í dag samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

„Að nýta gamla Hressingarhælið sem miðstöð fræðslu og færniþjálfunar á sviði geðræktar er gott og mikilvægt verkefni. Geðrækt og andleg líðan hefur verið mikið til umræðu undanfarin misseri þó hefur hún sjaldnast verið meiri en nú á tímum heimsfaraldurs. Börnin okkar og ungmenni hafa kallað eftir meiri sálfræðilegum stuðningi og þetta nýsköpunar og þróunarverkefni er eitt af því sem við ætlum að gera til að svara því kalli„ segir Anna Elísabet Ólafsdóttir, sérfræðingur lýðheilsumála hjá Kópavogsbæ. 

Húsið, sem stendur við Kópavogsgerði, hefur frá upphafi tengst heilbrigðismálum, fyrst sem hressingarhæli fyrir útskrifaða berklasjúklinga, síðar meðal annars sem holdsveikraspítali og húsnæði Þroskaþjálfaskólans. Húsið var reist að frumkvæði kvenfélagsins Hringsins 1925 og tekið í notkun árið 1926. Arkitekt hússins var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins. 

Unnið hefur verið að endurgerð hússins á vegum Kópavogsbæjar undanfarin ár. Lagfæringum á ytra byrði er lokið að mestu og þá hefur nánasta umhverfi verið lagfært, hellulagt og tyrft en staðsetning hússins á fallegum grónum stað við Kópavoginn býður upp á að sinna verkefnum utandyra, svo sem núvitundaræfingum og hugræktargöngum.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar