Tryggvi Guðmundsson, markahæsti leikmaður efstu deildar karla í fótbolta frá upphafi, er á leið í 2. deildina þar sem hann verður spilandi aðstoðarþjálfari Gunnlaugs Jónssonar hjá HK, að því er fram kemur á mbl.is
Tryggvi var síðast í herbúðum Fylkis en yfirgaf félagið fyrr í mánuðinum. Hann hefur áður spilað með ÍBV, KR og FH hér heima auk þess sem hann átti farsælan feril sem atvinnumaður.
HK hefur vægast sagt ekki riðið feitum hesti undanfarið í fyrstu umferðum Íslandsmóts 2. deildar í knattspyrnu karla. 2-2 jafntefli í síðasta leik gegn Hetti á heimavelli voru vægast sagt svekkjandi. Liðið er nú í þriðja sæti deildarinnar með 21. stig, aðeins þremur stigum frá efstu liðum sem eru Afturelding og KV. Það er þéttur pakki í efri hlutanum því Breiðhyltingarnir úr ÍR eru aðeins stigi á eftir HK. Það verður því um grjótharðan toppslag að ræða þegar HK mætir ÍR á útivelli í Breiðholtinu á fimmtudagskvöldið næst komandi klukkan 20:00. Sigur í þeim leik þýðir að annað hvort liðir gerir alvöru tilkall til að komast upp um deild í lok tímabils.
Sigurför 4. flokks kvenna
4. flokkur kvenna hjá HK hélt norður yfir heiðar til að taka þátt í hraðmóti hjá Þór á Akureyri í vikunni. Mótið fór prýðilega fram og sígandi lukka vann með liðinu.
Lagt var upp með að allir leikmenn fengju ámóta tíma á vellinum þannig að álagi var dreift á leikmenn auk þess sem ekki var við það miðað að stilla upp sterkasta liði í hverjum leik heldur hitt að allir fengju sem mest út úr. Úrslit leikja báru þessa nokkur merki til að byrja með skellir í fyrstu leikjunujm en eftir því sem leið á mótið náði liðið betur saman og sinn besta leik lék liðið gegn heimamönnum í Þór í síðasta leiknum í riðlinum 4-0 og vann góðan sigur. Síðasti leikurinn var síðan við liðið sem varð efst í B styrkleikaflokki og þar vann HK öruggan sigur þó svo tölurnar gæfu annað til kynna en leikið var við lið Fjarðabyggðar og lauk leik með 3-2 sigri HK.
Alltaf gaman að enda mót á sigri og glaðbeittir leikmenn HK tóku við bikar í mótslok.
Blikar í 4. sæti eftir sigur gegn Þór.
Sterk liðsheild hjá Blikum lagði Þórsara í Pepsí deildinni um helgina. Þórsarar voru ef til vill meira með boltann í heildina en það voru hins vegar Blikar sem fóru með sigur af hólmi, lokatölur 1:2. Mörk Blikanna gerðu þeir Renee Troost og Árni Vilhjálmsson með stuttu millibili í fyrri hálfleik en Chukwudi Chijindu minnkaði muninn fyrir Þór þegar um korter var til leiksloka. Blikar eru nú í 4. sæti með 23 stig eftir 11 leiki og eru farnir að anda ofan í hálsmálið á liðunum fyrir ofan sem flest hafa verið að tapa stigum. Skyndilega er allt komið í hnapp á toppi deildarinnar þar sem Blikar ætla sér að vera í mótslok.