Kópavogur grípur til aðgerða í leikskólamálum

Ófaglærðir starfsmenn leikskóla í Kópavogi hækka um 16.000 krónur í launum á mánuði frá og með 1. janúar 2018. Sama á við um frístundaleiðbeinendur í dægradvöl grunnskólanna í Kópavogi. Hækkunin er hluti af viðbrögðum Kópavogsbæjar við ástandi á vinnumarkaði í haust, sem hefur meðal annars birst í því að erfiðlega hefur gengið að ráða fólk til starfa í leikskóla og dægradvalir. Hækkunin greiðist í samræmi við starfshlutfall.

Alls verður 150 milljónum varið í sértækar aðgerðir í leikskólum Kópavogs á næsta ári. Vinnuteymi menntasviðs og leikskóla Kópavogs hefur unnið að tillögum í málefnum leikskóla síðan vinna við fjárhagsáætlun hófst í september.

Veruleg aukning verður á undirbúningstímum í leikskólum, þeim fjölgar úr níu tímum í tólf á viku á hverja deild. Í undirbúningstíma gefst starfsmönnum svigrúm til að undirbúa og skipuleggja faglegt starf á deildum, þjálfun nýrra starfsmanna og samstarf við foreldra. Tilgangurinn með því að fjölga tímunum er því að draga úr álagi og styrkja skipulag á faglegu starfi í leikskólum.

Kópavogsbær leggur mikinn metnað í leikskólastarf í bænum. Í leikskólum bæjarins eru fjölmörg verkefni í gangi eða verður hrint í framkvæmd á næstunni sem efla leikskóla bæjarins enn frekar, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Lögð verður áhersla á að bæta enn frekar aðstöðu og aðbúnað starfsmanna og barna á leikskólum. Húsgögn, tölvubúnaður og vinnuaðstaða verður endurnýjuð eftir þörfum. Í þessum framkvæmdum verður lögð sérstök áhersla á að bæta hljóðvist. Unnið verður að heilsueflingu og vellíðan barna og starfsmanna í anda lýðheilsustefnu Kópavogsbæjar og taka leikskólarnir þátt í fjölmörgum verkefnum með það að markmiði.

Þá verður áfram unnið markvisst að því að fjölga fagmenntuðum leikskólakennurum hjá Kópavogsbæ. Starfsfólki leikskóla býðst að sækja sér nám í leikskólakennarafræðum á vinnutíma. Styrkirnir eru í boði bæði fyrir ófaglærða starfsmenn, starfsmenn með aðra háskólamenntun en leikskólakennarafræði svo og leikskólakennara sem vilja bæta við sig framhaldsnámi.

Kópavogur var fyrst sveitarfélaga til að taka upp slíka styrki og fékk viðurkenninguna Orðsporið fyrir það frumkvæði árið 2015. Þess má geta að 26 starfsmenn eru í námi núna. Þá býðst leikskólakennurum að taka allt að 9 mánaða námsleyfi á launum.

Tillögurnar eru hluti af fjárhagsáætlun Kópavogs 2018.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar