Kristín Dagmar er nýr listrænn stjórnandi Gerðarsafns

Kristín Dagmar Jóhannesdóttir hefur verið ráðin listrænn stjórnandi Gerðarsafns, listasafns Kópavogs. Hún var valin úr hópi 40 umsækjenda og talin hæfust til að gegna starfinu. Starfið var auglýst laust til umsóknar í lok ágúst og er ráðið í það til fimm ára í senn. Kristín Dagmar mun meðal annars móta listræna stefnu Gerðarsafns, skipuleggja og halda utan um sýningar þess og faglegt starf, hafa umsjón með listaverkasafni Kópavogsbæjar og annast kaup á listaverkum, að því er segir í tilkynningu frá Gerðarsafni.

Kristín Dagmar hlaut M.A. gráðu í samtímalistfræðum frá Edinburgh College of Art og B.A í listfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur fjölbreytta reynslu af sýningarstjórnun og stjórnun listrænna verkefna en einnig hefur hún stýrt fræðslustarfi hjá Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands.

Meðal sýninga má nefna „Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn“ í Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafni og „Að elta fólk og drekka mjólk“ sem sett var upp í Hafnarborg. Hún var listrænn stjórnandi Sequences Art Festival í Reykjavík og er stundakennari við Listaháskóla Íslands. Nýverið ritstýrði hún bók um ljósmyndaverk Sigurðar Guðmundssonar, Dancing Horizon, sem gefin var út af Crymo­geu fyrr í mánuðinum.

Gerðarsafn var opnað árið 1994 og stendur á Borgarholtinu ásamt Salnum, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Bókasafni Kópavogs og Tónlistarsafni Íslands. Skammt undan er Héraðsskjalasafn Kópavogs. Starfsemi þessara húsa tilheyrir Listhúsi Kópavogsbæjar en þar er nú unnið að stefnumótun fyrir menningarstarf bæjarins í heild.

Kristín Dagmar er boðin velkomin til starfa hjá Kópavogsbæ.

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Fleiri fréttir

Stórskemmtileg leiksýning fyrir yngstu kynslóðina

Leikfélag Kópavogs sýnir um þessar mundir barnaleikritið Ferðin til Limbó eftir Ingibjörgu Jónsdóttur (1953-1986) sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu í janúar 1966. Leikritið byggir á barnabókinni Músabörn í geimflugi eftir sama

Er svefn besta verkjalyfið?

Svefn er ein af grunnstoðum góðrar heilsu ásamt góðri næringu, hreyfingu og vellíðan. Þegar við sofum notar líkaminn tímann til að endurnýja sig og undirbúa okkur fyrir næsta dag. Svefn