Lýsing í Kópavogi verðlaunuð

Skrautlýsing á Fífuhvammsvegi milli Smáratorgs og Smáralindar hlaut Íslensku lýsingarverðlaunin árið 2015. AlmarGuðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, afhenti verðlaunin við athöfn í Perlunni þann 6. febrúar í tengslum við Alþjóðlegt ár ljóssins og Vetrarhátíð.

lysing2

lysing1

Verkið var unnið að frumkvæði Kópavogsbæjar sem setti saman hönnunarteymið til vinna að því að lýsa brúarmannvirkið að degi og skapa fallega ásýnd að kvöldi. Lagt var upp með að lífga ásýnd en jafnframt mátti ekki draga úr umferðaröryggi. Þess má geta að lýsingin breytist eftir árstíma, tíma dags og viðburðum. Dæmi um það er þegar lýst var í frönsku fánalitunum eftir hryðjuverkin í París og í bleiku í bleikum október. Hönnun verksins, „Skrautlýsing brúar við Fífuhvammsveg“, var í hönd-um Þórdísar Rósu Harðardóttur, lýsingarhönnuðar, og sérfræðinga frá Jóhanni Ólafssyni & Co., verkfræðistofunni Eflu, Rafgeisla og Flúrlömpum. Lýsingabúnaðurinn í brúarmannvirkinu er frá OSRAM.

Dómnefnd valdi skrautlýsinguna úr sjö tilnefningum. Í rökstuðningi hennar segir meðal annars: „Á haganlega hátt hefur lýsingahönnuðinum tekist að veita birtu inn í rýmið með lausn sem er í senn spennandi, sveigjanlega og nútímaleg. Síbreytilegt sjónarspil með margbreytilegan staðaranda þar sem birta og skuggar leika saman. Ljósaspil sem kemur sífellt á óvart.“ Lýsingin verður framlag Ísland til Norrænu lýsingarverðlaunanna sem afhent verða á Íslandi haustið 2016.

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Fleiri fréttir

Stórskemmtileg leiksýning fyrir yngstu kynslóðina

Leikfélag Kópavogs sýnir um þessar mundir barnaleikritið Ferðin til Limbó eftir Ingibjörgu Jónsdóttur (1953-1986) sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu í janúar 1966. Leikritið byggir á barnabókinni Músabörn í geimflugi eftir sama

Er svefn besta verkjalyfið?

Svefn er ein af grunnstoðum góðrar heilsu ásamt góðri næringu, hreyfingu og vellíðan. Þegar við sofum notar líkaminn tímann til að endurnýja sig og undirbúa okkur fyrir næsta dag. Svefn