Röskun á íþróttastarfi á næstunni

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. 

Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli sveitarfélaga og innan sveitarfélaga eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga.

Samtök sveitarfélaga ítreka í tilkynningu að á morgun, mánudaginn 16. mars, verður starfsdagur í grunn- og leikskólum höfuðborgarsvæðisins þar sem stjórnendur og starfsfólk vinna nú að skipulagningu skólastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Frekari upplýsingar um skólastarf verður að finna á heimasíðun skólanna. Þá verða sundstaðir og íþróttamiðstöðvar lokaðar til að vinna að útfærslum á starfsemi þeirra miðað við tilmæli.

Grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu

Kennsla verður í hópum með ekki fleiri en 20 nemendum og ekki verður um blöndun hópa að ræða innan skóladagsins. Skólar munu halda úti eins miklu skólastarfi og kennslu og kostur er við þessar aðstæður. Það verður í höndum hvers sveitarfélags og skóla að útfæra skiptingu kennslu milli viðveru í skóla og náms heima. Nákvæm útfærsla verður því ólík milli skóla á höfuðborgarsvæðinu.

Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum mun falla niður og íþrótta- og sundkennsla verður í formi hreyfingar á skólalóð, inni í hópastofum eða annarrar útikennslu. Hver skóli skipuleggur nánari tilhögun skóladagsins og kennslutilhögun. Sér- og starfsdeildir verða með óbreytta starfsemi eftir fremsta megni. Þá verður matarþjónusta í boði í skóla ef mögulegt er að koma því við. Öll neysla á mat fer fram í heimastofum eða í matsal skóla þar sem því verður við komið. Vettvangsferðir falla niður ásamt ferðum í skólabúðir.

Leikskólar á höfuðborgarsvæðinu

Gert er ráð fyrir því að halda starfsemi leikskóla gangandi á sem öruggastan hátt með þeim hætti að börn verði í sem minnstum hópum og aðskilin sem mest. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum og opnunartími getur breyst s.s. vegna þrifa sem nauðsynleg eru. Hver leikskóli á höfuðborgarsvæðinu mun upplýsa foreldra um útfærslu á skólastarfi á heimasíðu eða í gegnum aðra miðla.

Sundstaðir og íþróttamiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu

Fjöldatakmarkanir miðast við 100 manns í sama rými í einu og tveggja metra fjarlægð verði milli einstaklinga. Sundlaugar eiga á flestum tímum dagsins að geta uppfyllt fyrra skilyrðið en tveggja metra fjarlægð er erfitt að uppfylla í sundlaugum og í íþróttahúsum. Það er ljóst að samkvæmt þeim tilmælum sem borist hafa, mun íþróttastarf og rekstur íþróttamannvirkja riðlast á næstunni.

Endurskipuleggja þarf verkferla með tilliti til nýrra krafna um sóttvarnir og til að tryggja öryggi gesta og starfsmanna sundlauga og íþróttamiðstöðva. Allir sundstaðir og íþróttamiðstöðvar verða því lokaðar mánudaginn 16. mars og dagurinn nýttur til ákvarðanartöku um framhaldið í samstarfi við viðeigandi aðila.

Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu

Frístundaheimili verða opin í framhaldi af skóladegi yngstu nemenda en viðbúið er að starfsemi muni að einhverju leyti skerðast.

Starfsemi félagsmiðstöðva tekur breytingum þar sem megináhersla verði á að mæta félagsþörf án þess að skörun verði milli hópa eða bekkja. Til dæmis með hópaskiptingu eða árgangaskiptingu í opnunum og lögð áhersla á hópastarf en ekki stærri samkomur. Nákvæm útfærsla verður ólík milli félagsmiðstöðva.

Tónlistarskólar og skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu

Tímar í hljóðfærakennslu og söngkennslu fara fram í húsnæði eða heimastöð tónlistarskóla eða skólahljómsveita. Hóptímar s.s. hljómsveitartímar, hópæfingar, tónfundir, forskóli og tónfræðitímar falla niður. Allir viðburðir tengdir þessari starfsemi falla niður. Viðmið þessi taka einnig til tónlistarnemenda sem eru eldri en 18 ára. Lögð er áhersla á að leitað sé leiða til að viðhalda virkni óháð fjarveru og niðurfellingu tónlistartíma. Nákvæm útfærsla verður ólík milli skóla.

Skólaíþróttir og íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu

Ekki verður hefðbundin íþrótta- og sundkennsla á vegum grunnskóla í samkomubanninu. Viðkomandi húsnæði verður lokað fyrir skólakennslu og íþrótta- og sundkennarar vinna með námshópnum í heimastofu eða úti á skólalóð. Íþróttafélög munu gefa út eigin tilkynningar um íþróttaæfingar. Tilkynningar eru þegar komnar frá íþróttasamböndum um leikjabann.

Menningarstofnanir á höfuðborgarsvæðinu

Söfnin á höfuðborgarsvæðinu, listasöfn, bókasöfn og sögusöfn halda óbreyttum opnunartíma þrátt fyrir samkomubann en boðuðum viðburðum verður aflýst eða frestað, svo sem leiðsögnum, listsmiðjum og málþingum, á meðan samkomubannið er í gildi. Á söfnum eru gestir hvattir til að hafa hæfilega fjarlægð sín á milli. Áfram verður lögð áhersla á aukin þrif í söfnunum á höfuðborgarsvæðinu umfram venjubundna ræstingu.

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla og þeirra stofnana sem við eiga. Þá eru íbúar jafnframt hvattir til að fylgja leiðbeiningum landlæknis um viðbrögð við veirunni inn á covid.is.

Breytt fyrirkomulag þjónustu Bæjarskrifstofu Kópavogs

Vegna COVID-19 verður  fyrirkomulag þjónustu Bæjarskrifstofu Kópavogs breyttt frá og með 16.mars.

Húsnæði Bæjarskrifstofu Kópavogs að Digranesvegi 1 og Hamraborg 8 verður lokað fyrir utanaðkomandi og aðgengi að Fannborg 6, þar sem velferðarsvið er til húsa, verður takmarkað.

Samgangur innan bygginga stjórnsýslunnar verður takmarkaður og starfsfólk hvatt til fjarfunda. Hluti starfsfólk stjórnsýslunnar vinnur heima. Lögð er áherslan á að tryggja þá starfsemi og þjónustu sem þarf að haldast órofin á öllum stigum viðbragðsáætlunar Kópavogsbæjar. Meðal þess sem áhersla er á að tryggja er velferðarþjónustan, til að mynda talið barnavernd.

Símanúmer Kópavogs er 4410000. Vakin er athygli á að netföng starfsmanna er að finna á vefsíðu bæjarins www.kopavogur.is. Þá verður erindum sinnt rafrænt en í Þjónustgátt Kópavogsbæjar er að finna hinar ýmsu umsóknir. 

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar