Þríhnúkagígur og hraunhellar á Íslandi í máli og myndum

Fyrirlestur og myndasýning Árna B Stefánssonar augnlæknis og hellakönnuðar í Kórnum, Safnahúsi Kópavogs, Hamraborg 6a Fimmtudaginn 15. maí, kl. 17:15

Þríhnúkagígur. Séð af botni hvelfingarinnar, upp gosrásina.
Þríhnúkagígur. Séð af botni hvelfingarinnar, upp gosrásina.

Nokkur umræða hefur verið undanfarin misseri um umgengni og umsjón með vinsælum ferðamannastöðum. Helst er litið til uppbyggingar og viðhalds á þessum svæðum sem mörg hver eru undir miklu álagi og víða er komið yfir þolmörk. Þar hefur borið hæst svæðið í kringum Geysi í Haukadal.

Hellar eru í flokki vinsælla ferðamannastaða. Fjölmargir  hellar eru á Íslandi og hraunhellarnir þekktastir. Margir þeirra eru afar viðkvæmir. Flestir stærstu og þekktustu hellar landsins hafa orðið fyrir miklum skaða af völdum ágangs.

Í hellaumræðunni hefur Þríhnúkagíg borið hátt á undanförnum árum, en gígurinn er einhver sérstæðasti hellir landsins. Hann er jafnframt talinn af kunnáttufólki merkasti hraunhellir veraldar. Þríhnúkagígur er dýpsti og þriðji stærsti gíghellir heims.  Um næstkomandi Jónsmessu verða liðin 40 ár frá því Árni kannaði gíginn fyrstur manna með aðstoð félaga sinna og frænda og gerði fyrstu athuganir á honum. Árni hefur alla tíð farið fremstur í flokki þeirra sem tala fyrir verndun hella og viðkvæms umhverfis þeirra. Afar skemmtilegt líkan af Þríhnúkagíg, gert af Árna, er til sýnis á Náttúrufræðistofunni  ásamt umfjöllun um verndun og lífríki hella. Líkanið, jafnt yfirborð sem innviðir gígins, er unnið út frá mælingum og frumgögnum sem Árni, félagar hans, VSÓ ráðgjöf o.fl. hafa safnað allt frá árinu 1991.

Fimmtudaginn 15. maí nk. mun Árni B. Stefánsson fjalla um hella, umgengni um þá og vernd þeirra í máli og myndum í Kórnum í Safnahúsi Kópavogs og hefst fyrirlesturinn kl. 17:15.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

-Náttúrufræðistofa Kópavogs

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Fleiri fréttir

Kópavogsblaðið komið út

Stolt Kópavogs eru á forsíðu Kópavogsblaðsins að þessu sinni. Karlalið Breiðabliks er komið í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir að hafa slegið út Struga frá Norður-Makedóníu. Blikar leika sex leiki í

Mygla hjá velferðarsviði

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því

Stuð á Hamraborg Festival

Hamraborg Festival fór fram í lok ágúst í Hamraborg og í menningarhúsunum í Kópavogi, en Hamraborg Festival er þverfagleg hátíð með sérstakri áherslu á myndlist, staðbundin verk, gjörningalist og samfélagslega

Króníkan opnar í Gerðarsafni

Veitingastaðurinn Króníkan opnaði í sumar í Gerðarsafni. Samningur við nýjan rekstraraðila var undirritaður 11.maí, á afmælisdegi Kópavogsbæjar. Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir, systkini úr Vesturbæ Kópavogs, hafa tekið reksturinn að sér