Heimaþjónusta

-Þarftu aðstoð við daglegt líf?

Kynning: Sinnum heimaþjónusta hefur unnið að því síðustu ellefu ár að byggja upp fjölþætta velferðarþjónustu. Þjónustan er hugsuð fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda sökum aldurs, fötlunar, heilsubrests eða annarra persónulegra aðstæðna. 

Ásamt því að veita heimaþjónustu annast Sinnum vinnuprófanir fyrir VIRK starfsendurhæfingarsjóð. Ráðgjafi Sinnum útvegar skjólstæðingum VIRK tímabundin störf ásamt því að sjá um ráðgjöf og eftirfylgni.

Stefna Sinnum er að veita einstaklingsmiðaða, persónulega og sveigjanlega þjónustu svo mæta megi þörfum og óskum hvers skjólstæðings. „Góð og samfelld þjónusta með hagsmuni skjólstæðinganna er höfð að leiðarljósi og er boðið uppá aðstoð við allar athafnir daglegs lífs, allt frá aðhlynningu og liðveislu til þrifa,“ segir Ragnheiður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri.

Þjónustunotendur eru í dag í kringum 150 talsins. Á meðal viðskiptavina eru sveitarfélög, stofnanir og einstaklingar (m.a. með beingreiðslusamninga) sem gera samninga til bæði lengri og skemmri tíma. Hluti þjónustunotenda Sinnum fullnýtir þjónustuna sem þeir eiga rétt á hjá sínu sveitarfélagi og auka lífsgæði sín svo enn meira með því að fá viðbótarþjónustu frá Sinnum sem þeir eða aðstandendur greiða fyrir. 

„Markmið okkar snýst um að búa einstaklingnum og fjölskyldu hans umgjörð sem veitir aukið öryggi í eigin búsetu. Um leið hefur einstaklingurinn aukið val og/eða frelsi og getur sjálfur verið virkari þátttakandi í samfélaginu sem felur í sér aukin lífsgæði,“ segir Ragnheiður. Hún segir starfsfólk Sinnum finna fyrir auknum áhuga viðskiptavina á því að hafa val um þá einstaklinga sem veita aðstoðina og tímasetninguna sem þjónustan fer fram á og að áhersla sé lögð á að koma til móts við þær væntingar. „Mesti vöxturinn hefur verið í þjónustu tengdri þrifum, öryggis- og næringarinnlitum og aðstoð við böðun.“

Stjórnendur Sinnum: Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Elísabet J. Hjálmarsdóttir, Ragnheiður Björnsdóttir, Ásgerður J. Ágústsdóttir, Gyða M. Marvinsdóttir og Vala Rut Friðriksdóttir.

„Mannauðs- og gæðamál eru okkur hugleikin og hefur fyrirtækið á undanförnum árum gengið í gegnum mikilvægt þróunar- og umbótastarf sem hefur skilað sér í bættri þjónustu.“  Embætti landlæknis gerði úttekt á gæðum og öryggi þjónustu Sinnum og er skýrslan aðgengileg á vef embættisins og á heimasíðu Sinnum. Úttektin tók meðal annars til atriða sem varða stefnu, þjónustumál, gæði, öryggi, skráningu, meðhöndlun frávika og kvartana og starfsumhverfi.

„Við búum að því að hafa fjölmennan og öflugan hóp starfsfólks sem leggur mikið upp úr fagmennsku og sveigjanleika og er því almennt hægt að bregðast hratt og örugglega við þjónustubeiðnum sem berast Sinnum. Hjá fyrirtækinu starfa hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, þroskaþjálfar, sjúkraliðar, félagsliðar og almennt starfsfólk sem býr yfir dýrmætri reynslu.“

Mikil áhersla er lögð á þjálfun starfsmanna hjá Sinnum og sækja þeir ýmis konar námskeið og fræðsluerindi líkt og skyndihjálparnámskeið og námskeið í sýkingarvörnum. „Í þjónustu sem er sérstaklega faglega krefjandi er meiri tími lagður í undirbúning. Teymið fær í þeim tilvikum sérhæfðari fræðslu og kennslu á tækjabúnað í samvinnu við fagaðila. Umönnunaraðilar einstaklinga í öndunarvél sækja regluleg námskeið í Hermisetri LSH þar sem fram fer bókleg og verkleg þjálfun“ segir Ragnheiður.

Þjónustunotendur eru viljugir til að veita fyrirtækinu umsagnir og er þær að finna í kynningarbæklingi sem hægt er að fá sendan heim en einnig á heimasíðu og Facebooksíðu fyrirtækisins. Þessar umsagnir eru okkur afar dýrmætar þar sem við leggjum áherslu á framúrskarandi þjónustu. „Velkomið að hafa samband með því að senda tölvupóst á Sinnum eða jafnvel koma á fund vegna fyrirspurna um þjónustu, segir Ragnheiður að lokum.“

Nánari upplýsingar:
www.sinnum.is
sinnum@sinnum.is
Einnig finnur þú Sinnum á Facebook

Umræðan

Fleiri fréttir

Gnitaheiði er gata ársins

Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi

Flautukórinn í frægðarför

„Við komum heim með fullt af gulli, silfri og bronsi rétt eins og á Ólympíuleikunum,” segir kampakát Pemela De Sensi, flautukennara Tónlistarskólans í Kópavogi. Flautukór kórsins lagði nýverið Sikiley á

Líf og fjör á Hamraborgarhátíð

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri Hamraborgarhátíðarinnar í ár. Agnes útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 en stundar nú nám í sýningastjórnun við Háskóla Íslands. Agnes sýndi

Gunnar Helgason.

Bókasafn Kópavogs í haust

Haustið ber með sér rútínu, kertaljós og appelsínurauða tóna, en á Bókasafni Kópavogs er dagskráin að fara í gang með vinsælum viðburðum fyrri ára í bland við nýja og spennandi

Gamlar fréttir úr sarpinum

kosnkoktell
Ása Berglind Böðvarsdóttir Menntaskólinn í Kópavogi
v2ArnthorFlatey
screen-shot-2016-09-16-at-11-54-54
1
Karen-Elisabet-Halldorsdottir
Karlakór Kópavogs með Kristjáni Jóhannssyni í Hörpu 07.12.2014
Unnur Flóvenz formaður Rannveigar
1501816_599821193417374_1456742139_n