Rótgróinn og traustur bæjarmiðill í Kópavogi

Kópavogsblaðið hefur komið út frá árinu 2004 og verið hluti af nærumhverfi bæjarbúa í tvo áratugi.
Við höfum starfað náið með fjölmörgum fyrirtækjum í bænum við að miðla sögu þeirra á faglegan hátt.

Ritstjórnarstefna: Kópavogsblaðið vill stuðla að aukinni samheldni og samstöðu Kópavogsbúa. Við höfum sérstakan áhuga á skemmtilegu mannlífi og atvinnulífi í Kópavogi og því sem gerir Kópavog að sérstökum og jákvæðum bæ að búa í, starfa og heimsækja.

Kópavogsblaðið kom fyrst út árið 2004. Fyrirtækið Borgarblöð gaf það út þar til Auðun Georg Ólafsson tók við útgáfu þess og ritstjórn árið 2013. Fljótlega bættist Guðmundur Árnason við en hann sér um alla útlitshönnun blaðsins.

Tekið er við aðsendum greinum á netfangið: kopavogsbladid@kopavogsbladid.is 

Hámarks orðafjöldi er 300 orð.

Greinar/tilkynningar og auglýsingar skulu berast eigi síðar en klukkan 18:00, föstudegi fyrir útgáfudag.

Auðun Georg Ólafsson

Auðun Georg Ólafsson, útgefandi og ritstjóri.

Guðmundur Árnason,hönnun og markaðsmál.