Kynning
Veitingastaðurinn Indian Food Box, sem nýverið opnaði í Hamraborg, fagnar um þessar mundir fimm ára starfsafmæli sínu. Þetta markar tímamót, ekki aðeins í velgengni veitingastaðarins heldur einnig í lífi stofnenda staðarins, vinanna Abhishek Chauhan og Rajesh Paul. Saman hafa þeir yfir 35 ára reynslu af rekstri veitingastaða og er markmið Indian Food Box einfaldlega það að færa heiðarlegan, indverskan heimilismat til Íslands.
Saga veitingastaðarins hófst í látlausu skyndibitaeldhúsi í Langarima 21 í Reykjavík þar sem vinirnir prófuðu sig áfram með fjölskylduuppskriftir að heiman, vinnudagar voru langir og strangir en vinirnir deildu þeirri óbilandi trú að góður matur geti tengt menningarheima. Þeir Abhishek og Rajesh kynntu Ísland fyrir hægelduðum karrýréttum, biryani og götumat sem þeir elduðu eins og heima á Indlandi. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og slógu réttir þeirra samstundis í gegn.

Rétt fyrir fimm ára afmæli Indian Food Box rættist annar draumur þegar hlýlegur og glæsilegur veitingastaður við Hamraborg 11 í Kópavogi var opnaður. Nýi staðurinn er undir stjórn matreiðslumeistarans Pradip De en hæfileikar hans og ástríða hafa lyft matseðlinum upp í hæstu hæðir. Íbúar Kópavogs hafa tekið þessum nýja stað opnum örmum og oft er örtröð í hádeginu bæði meðal vinnandi fólks og fjölskyldna, og veisluréttirnir eru einnig vinsælir.

Indian Food Box hefur unnið til verðlauna á Evrópsku götumatarhátíðinni í þrígang, frá 2023. Þeir Abhishek og Rajesh eru fullvissir um að árangur þeirra hefði aldrei náðst án mikillar vinnu, seiglu og þess góða fólks sem hefur starfað með þeim og staðið við bakið á þeim í þessu krefjandi ferli.
Að auki er spennandi að segja frá því að Indian Food Box er að vinna að matreiðslubók í samstarfi við rithöfundinn Sjöfn Asare, með indverskum uppskriftum sem hægt er að elda á undir 10 mínútum, en bókin kemur út á vormánuðum.

Að lokum er gaman að greina frá því að Indian Food Box er stoltur stuðningsaðili krikkets á Íslandi og styrkir félagið Kópavogur Puffins í þeirri góðu trú að matur og íþróttir eigi sameiginlegt markmið – að sameina fólk.

Um leið og Indian Food Box fagnar þessum áfanga, þakka þeir Abhishek, Rajesh og allt teymið Íslandi innilega fyrir traustið, ástina og stuðninginn sem það hefur sýnt undanfarin fimm ár. Næsti kafli lofar enn meiru góðu bragði, hlýju og traustri samvinnu.

Sjá nánar:
Indian Food Box á Facebook: https://www.facebook.com/indianfoodbox.is
Sími: 888 8882
https://indianfoodbox.is/











