KYNNING:
Nú þegar febrúar er liðinn og meistaramánuður á lokasprettinum þá fara margir að undirbúa sig fyrir sumarið. Þá er gott að hafa góða rútínu eða æfingaplan til staðar svo þjálfunin verði markviss og árangur náist. Tilvalið er að nota tímann sem gefst núna, fram til vors, að undirbúa sig fyrir hjóla- eða hlaupaæfingar úti í náttúrunni með því að skella sér á brettið eða kíkja í hjólatíma hjá Reebok Fitness. Í boði eru margvíslegir opnir tímar sem ættu að henta öllum.

Boðið er upp á einkaþjálfun í Reebok Fitness. Að auki eru þar margir einkaþjálfarar með fjölda fólks í fjarþjálfun. Frábær aðstaða er í stöðvum Reebok Fitness sem ætti að henta byrjendum jafnt sem afreksíþróttafólki.

Tímarnir hjá Reebok Fitness eru mjög vinsælir. Þar má nefna 60+ tímana auk spinningtíma. Body Pump nýtur líka vinsælda sem er frábær tími fyrir alla sem vilja lyfta lóðum í hópi fólks. Ef þú vilt svo meira fjör er Zumba tíminn til að kíkja í og dansa við frábæra tónlist. Úrval námskeiða sem eru í boði í stöðinni í Kópavogslaug eru fjölbreytt og þar hefur KarlaYoga verið vinsælt auk átaksnámskeiða. Tækjasalurinn er alltaf mjög vinsæll hjá viðskiptavinum Reebok Fitness enda er hann vel tækjum búin til æfinga af öllu tagi.
Facebook
Instagram
YouTube
RSS