30 mánuðir í Anarkíu

Laugardaginn 12. desember kl. 15 verður opnuð samsýning Anarkíuhópsins í Anarkíu listasal í Kópavogi.

Anarkía listasalur var fyrst opnaður sumarið 2013 og hefur því verið starfræktur í tvö og hálft ár. Á þessum 30 mánuðum hafa verið haldnar yfir 50 listsýningar í Anarkíu. Að sýningarsalnum stendur hópur listamanna sem kjósa að skapa sér sjálfir tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri á eigin forsendum, leggja áherslu á milliliðalaust erindi listamannsins við listnjótendur og frelsi hans til að rækta sérkenni sín og finna hugsun sinni og kenndum farveg í lífi og list – svo vitnað sé í stefnuyfirlýsingu hópsins.

Anarkíuhópurinn telur nú 16 listamenn sem allir hafa haldið einkasýningar í sýningarsalnum, flestir oftar en einu sinni. Á sýningunni er litið yfir farinn veg og dregin fram valin verk Anarkíufélaga sem flest hafa áður komið fyrir almenningssjónir á einkasýningum þeirra í listasalnum.

Sýningin stendur til 10. janúar 2016.

 

Anarkíuhópinn skipa:

Aðalsteinn Eyþórsson

Anna Hansson

Ásta R. Ólafsdóttir

Bjarni Sigurbjörnsson

Elísabet Hákonardóttir

Finnbogi Helgason

Guðlaug Friðriksdóttir

Guðmunda Kristinsdóttir

Guðmundur Birkir Pálmason

Hanna Pálsdóttir

Helga Ástvaldsdóttir

Hrönn Björnsdóttir

Jóhanna V. Þórhallsdóttir

Kristín Tryggvadóttir

Ragnheiður Guðmundsdóttir

Þorgeir Helgason

Anarkía listasalur er til húsa í Hamraborg 3 í Kópavogi – aðkoma að norðanverðu, frá Skeljabrekku/Hamrabrekku. Opnunartími: þriðjudaga til sunnudaga kl. 15–18.

Umræðan

Fleiri fréttir

Ryki slegið í augu bæjarbúa

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi sendi frá sér fréttatilkynningu um óstaðfest sex mánaða uppgjör sveitarfélagsins. Hughrifin af fréttatilkynningunni eru að hún ein hafi skilað hundruðum milljóna króna í plús vegna hagræðingar