Nýverið var bókin „Það sem við tölum um þegar við tölum um Guð“ gefin út af Skálholtsútgáfunni. Í bókmenntaguðsþjónustu sunnudaginn 30. október kl. 11:00 í Kapavogskirkju mun þýðandi bókarinnar dr. Grétar Halldór Gunnarsson fjalla um bókina í stað prédikunar. Lesnir verða textar úr bókinni. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Allir hjartanlega velkomnir.

Bæjarstjórn fundaði með börnum og ungmennum
Bæjarstjórn Kópavogs fundaði með fulltrúum ungmennaráðs og grunnskólabarna bæjarins þriðjudaginn 12.maí. Á fundinum voru lagðar fram tillögur Barna- og ungmennaþings en það er einn af hornsteinum barnvæns sveitarfélags, eins og Kópavogur er, að börn





