Lýsingar hægrisins á vinstri gildum eru sérstakar. Mannúð, jöfnuður, réttlæti og samfélagshugsun virðast hættuleg rekstri „Kópavogs hf.“ hægrisins. Lögbundin þjónusta sveitarfélagsins við fólk virðist byrði og krafan um manneskjulegra sveitarfélag nánast ógn við framtíðina.
Boðskapur Vinstri grænna og óháðra er einfaldur. Við viljum Kópavog sem sér og hlustar á fólk, aðstoðar þegar þörf er á og tryggir öllum öruggt heimili á viðráðanlegu verði, hvort sem þau vilja eiga eða leigja.
Forgangsröðum þjónustu og lífsgæðum
Öll viljum við að Kópavogur sé vel rekið sveitarfélag en gæði og styrkur sveitarfélagsins verða seint mæld í debet og kredit fjárhagsbókhaldsins. Styrkinn má helst sjá í því hvort einstaklingar og fjölskyldur bæjarins fái stuðning við hæfi áður en vandi þeirra vex. Það er fjárfesting til framtíðar því íbúar eiga ekki að berjast við kerfið til að fá aðstoðina sem þeir eiga rétt á.
Það er ekki ábyrgðarfullt að safna afgangi ef grunnþjónustan verður of veikburða fyrir fólkið sem þarf hana. Bærinn á að einfalda líf íbúa, ekki láta íbúa ráfa milli kerfa og deilda í leit að eyðublöðum til að komast á biðlista.
Veljum sterkara samfélag fyrir öll
Sterkt samfélag verndar og styður fólkið sitt með aðgengilegri og manneskjulegri þjónustu þegar fólk þarf á henni að halda. Í sterku samfélagi fá börn að vera með, óháð efnahag foreldra sinna. Öruggt heimili er ekki bara forréttindi hinna efnameiri. Fjölbreytileikanum er fagnað. Hverfin eru lifandi og aðgengi að útivistarsvæðum er gott. Íbúar hafa áhrif og á þá er hlustað áður en ákvarðanir eru teknar.
Við ætlum að standa vörð um lífsgæði allra íbúa og vera rödd íbúa, jöfnuðar, jafnréttis og umhverfisins í bæjarstjórn.
Hjálpumst að við að gera Kópavog að enn sterkara samfélagi fyrir okkur öll.
Mætum á kjörstað og merkjum X við V 16. maí.





