Auglýsing

AA-samtökin með aðstöðu í Hvíta húsinu.

HvitaH0620132930-(3)

 

AA-samtökin í Kópavogi hafa nú gert samning við Kópavogsbæ um leigu á efri hæð hússins að Dalbrekku 4. Samningurinn var undirritaður nýverið af þeim Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra og Sverri Steini Sverrissyni, fyrir hönd AA-samtakanna. Húsnæðið er nefnt Hvíta húsið en þar starfa tíu deildir samtakanna og eru fundir haldnir reglulega.

Samtökin voru áður til húsa að Digranesvegi 12 en leigutíminn þar rann út í upphafi árs. Bæjarráð óskaði þá eftir því að samtökunum yrði boðin afnot af öðru húsnæði í eigu bæjarins.

Fyrir valinu varð Dalbrekka 4 og fluttu samtökin þar inn fyrr á árinu þótt samningurinn hafi fyrst verið undirritaður nú.

Samningurinn er til næstu fjögurra ára.

tekið af vef kopavogur.is

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi.

Kársnesið verður þéttbyggðasti reitur landsins

Meirihluti Kópavogsbúa er andvígur Borgarlínunni og þéttingu byggðar. Þetta segir rannsókn sem kynnt var á RÚV. Niðurstaðan kemur eflaust fáum á óvart en í oddvitaumræðum Vísis kom það skýrt fram að einungis Miðflokkurinn