Auglýsing

Bókavogur hóf göngu sína

Markmið Bókavogs er að efla lestraráhuga. Ljósmynd: Sigríður Rut Marrow

Lestrarátak Kópavogsbæjar hófst um helgina með opnunarhátíð sem haldin var á Bókasafni Kópavogs. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri setti hátíðina og þá var boðið upp á skemmtilega dagskrá í safninu.

Góður rómur var gerður að dagskránni meðal gesta en meðal þeirra sem komu fram voru Gunnar Helgason, Blær Guðmundsson, Eva Rún Þorbergsdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.

Markmið Bókavogs er að efla lestraráhuga, styrkja læsi í víðum skilningi og skapa jákvæða upplifun í kringum bækur og lestur fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur í öllum hverfum bæjarins.

Til þess að lestrarátakið skili sem bestum árangri munu leik- og grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, íþróttahús, sundlaugar og bókasöfn taka þátt með dagskrá sem stendur í mars með megináherslu á 14.-20.mars.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Bókavogur hóf göngu sína

Lestrarátak Kópavogsbæjar hófst um helgina með opnunarhátíð sem haldin var á Bókasafni Kópavogs. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri setti hátíðina og þá var boðið upp á skemmtilega dagskrá í safninu. Góður rómur var gerður að