Auglýsing

Laun bæjarfulltrúa í Kópavogi lækka

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma á bæjarstjórnarfundi í gær, þriðjudaginn 12. febrúar, að lækka laun fyrir setu í bæjarstjórn um 15 %.

Lækkunin felur það í sér að bæjarfulltrúalaun lækka um 53.094 kr. á mánuði, fara úr 353.958 í 300.864. Laun fyrir setu í öðrum nefndum og ráðum haldast óbreytt, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Bæjarstjóri lagði til í upphafi kjörtímabils að laun hans yrðu lækkuð og laun bæjarfulltrúa sömuleiðis. Laun bæjarstjóra lækkuðu um 15% og tók sú lækkun gildi 12. júní síðastliðinn.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Orri Vignir Hlöðversson bæjarfulltrúi og er í 1.sæti Framsóknar í Kópavogi Björg Baldursdóttir bæjarfulltrúi og er í 2.sæti Framsóknar í Kópavogi.

Byggjum á árangri, ekki loforðum

„Kópavogur, okkar heimili“ er ekki bara slagorð okkar hjá Framsókn. Það er sýn á samfélag þar sem fólki líður vel, fjölskyldur finna öryggi og við byggjum áfram upp bæ sem við getum öll