Þakkargjörð í tilefni af 70 ára afmæli Kópavogsbæjar

Blómlegt félagslíf í Félagsheimili Kópavogs. Ljósmynd Herbert Guðmundsson.

Aðsent frá Vinum Kópavogs

Vinir Kópavogs bjóða til „þakkargjörðar“ við Félagsheimili Kópavogs kl. 15:00 sunnudaginn 11. maí næstkomandi  í tilefni af  70 ára afmælis Kópavogs. Margir Kópavogsbúar eiga afar góðar minningar tengdar Félagsheimili Kópavogs og þetta kaffisamsæti er tækifæri til að sýna þessari merku byggingu virðingu og þakklæti.

Sögumaðurinn góði, Fríman Ingi Helgason, ætlar að mæta í kaffisamsætið og segja frá húsinu og þeirri starfsemi sem þar fór fram. Þá verður boðið upp á kaffiveitingar í tilefni dagsins.

Félagsheimili Kópavogs jólin 1978. Mynd: Ólafur Jónsson.

Félagsheimilið í Kópavogi, söguríkasta hús bæjarins, var vígt árið 1959. Bygging þess hófst áður en bæjarfélagið var stofnað 1955 að frumkvæði félaga í bænum; Framfarafélags Kópavogs, Kvenfélags Kópavogs, Breiðabliks, Skátafélagsins Kópar, Slysavarnarfélags Kópavogs og Leikfélags Kópavogs. Í Félagsheimilinu sló hjarta  hjarta bæjarins, bæði sem heimili menningar og stjórnsýslu, í áratugi.

Þegar húsið var opnað sagði í frétt í vikublaðinu Fálkanum (sjá Wikipedia): „Á fyrstu hæðinni eru tveir salir, annar fyrir kvikmynda- og leiksýningar en hinn fyrir veitingar, og þar er einnig eldhús, rúmgott anddyr, snyrtiherbergi, búningsherbergi, o.fl. Mun bærinn annast þar bíósýningar og veitingasölu, þegar félög bæjarins þurfa ekki á salnum að halda. Ágóðinn rennur til ýmissa menningarmála. Kvikmyndasalurinn tók 300 manns og veitingasalurinn 120 manns.“

Í Wikepediu segir einnig: „Leikfélag Kópavogs sýndi leikritið Veðmál Mæru Lindar í leikstjórn Gunnars Hansen 22. mars 1959. Margvísleg starfsemi hefur verið í Félagsheimilinu í gegnum tíðina. Þar voru regluleg spilakvöld haldin, Rótarýklúbbur Kópavogs fundaði þar, árið 1964 fluttist Bókasafn Kópavogs inn á aðra hæð í 150 fermetra sal. Þar var lesstofa með 18 sætum, barnadeild með borðum og stólum, viðgerðarstofa bóka, bókageymsla og skrifstofa fyrir bæjarbókavörð. Í félagsheimilinu voru einnig fjölmargir tónleikar haldnir og segir í Lesbók Morgunblaðsins að Kópavogsbær hafi verið „pönkbær” og að Félagsheimilið hafi verið miðstöð íslenskra pönkara til að byrja með og þar léku meðal annars Fræbblarnir, Snillingarnir, Dordingull með Dr. Gunna og fleiri íslensk pönkbönd. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík og nágrenni, hélt sinn fyrsta félagsfund utan Reykjavíkur í félagsheimilinu í nóvember árið 1982, eftir að búið var að koma fyrir hjólastólalyftu við það.“

Framangreind upptaling er ekki tæmandi. Til að mynda voru bæjarskrifstofurnar um árabil staðsettar í Félagsheimilinu, þar voru skólaböllin, fundir bæjarstjórnar að ógleymdum Tónlistaskólanum.

Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs seldi Félagsheimilið í maí 2018 og þremur árum síðar samþykkti meirihlutinn deiliskipulag fyrir Fannborgarreit þar sem gert er ráð fyrir að þessi söguríkasta bygging Kópavogs verði rifin. Enn sem komið er hefur reynst ómöglegt að taka til við framkvæmdir vegna ýmissa tæknilegra vankanta á áformunum.

Umræðan

Fleiri fréttir

Ársreikningur staðfestur

Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti ársreikning ársins 2024 á fundi sínum 13.maí að lokinni síðari umræðu um ársreikninginn. Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 10.apríl og vísað til fyrri umræðu í

Nýtt dómsmál í 70 ára afmælisgjöf

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi fór mikinn og fagnaði 4,5 milljarða króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu í ársreikningi bæjarins fyrir skemmstu og hældi sér af bestu niðurstöðu í heil 17 ár. Sú niðurstaða

Götuganga í sumarblíðu

Götuganga Virkni og vellíðan í Kópavogi fór fram mikilli veðurblíðu í dag. Gangan er nú haldin í þriðja sinn og tóku tæplega 300 þátt í göngunni sem hófst og lauk