Vinstri græn hafa ákveðið að bjóða fram lista undir merkjum Vinstri grænna og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG, mun leiða listann. Framboðslistinn verður kynntur í heild sinni eftir páska, að því er segir í tilkynningu. Vinstri græn eiga jafnframt í viðræðum við fleiri áhugasama aðila sem vilja leggja framboðinu lið.
Bæjarmálafélagið Fyrir Kópavog, með Ómar Stefánsson fremstan í flokki, hefur ákveðið að draga sig úr samstarfinu fyrir komandi kosningar.
„Vinstri græn og óháð bjóða fram skýran og róttækan valkost fyrir Kópavog sem byggir á öflugri velferð, húsnæðisöryggi, umhverfis- og náttúruvernd, sterkri nærþjónustu og raunverulegu íbúasamráði. Við teljum mikilvægt að í bæjarstjórn Kópavogs sé skýr og ábyrg rödd sem stendur með fólkinu í bænum og ver dýrmæt útivistarsvæði og náttúru,“ segir í tilkynningu.
„Við erum sannfærð um að það á að vera frábært fyrir okkur öll að búa í Kópavogi. Við ætlum að auðvelda ungu fólki að tryggja sér húsnæði, endurskoða Kópavogsmódelið í þágu foreldra og barna og standa vörð um lífsgæði, umhverfi og náttúru bæjarins,“ segir Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG.
„Kópavogur á að vera samfélag sem heldur utan um fólk og grípur það þegar á þarf að halda. Við viljum leggja grunn að sterku samfélagi og gera Kópavog að enn betri bæ fyrir okkur öll. Kópavogur er samfélag, ekki hlutafélag.“



