Addi Grétars kominn heim

Arnar Grétarsson

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur ráðið Arnar Grétarsson þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu til þriggja ára. Breiðablik er uppeldisfélag Arnars og lék hann síðast með liðinu sumarið 2009 þegar liðið varð bikarmeistari í fyrsta sinn. Arnar var þá jafnframt aðstoðarmaður Ólafs Kristjánssonar, sem þjálfaði liðið.

Síðustu ár hefur Arnar stýrt knattspyrnumálum hjá Club Brugge í Belgíu og hafði áður gegnt sömu stöðu hjá AEK í Aþenu.

Arnar tekur við starfinu af Guðmundi Benediktssyni. Hann varð aðalþjálfari liðsins á nýafstöðnu tímabili eftir að Ólafur Kristjánsson hvarf til starfa í Danmörku. Tímabundinn samningur við hann og Willum Þór Þórsson, aðstoðarþjálfara, rann út í lok keppnistímabilsins.

Mikill fengur að Arnari
„Það er mikill fengur að því að fá Arnar aftur til starfa hjá Breiðabliki og fagnaðarefni,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar við blikar.is. „Arnar hefur mikla reynslu af fótboltanum á stóra sviðinu og þekkir líka vel til starfsins hér í Kópavogi. Um leið þökkum við Guðmundi og Willum fyrir gott starf í þágu félagsins. Það var ekki einföld staða sem við blasti þegar Ólafur ákvað að ráða sig til Nordsjælland þegar keppnistímabilið var rétt að byrja. Þeir, ásamt strákunum inni á vellinum, tókust á við það af æðruleysi og tryggðu að Breiðablik spilar áfram á meðal þeirra bestu,“ segir Eysteinn.

Ánægður að koma heim
´´Ég er gríðarlega ánægður með að hafa tekið þessa ákvörðun að koma aftur heim í Kópavoginn. Þetta er krefjandi en jafnframt mjög spennandi verkefni að halda áfram með og reyna að byggja ofan á þá góðu vinnu sem Ólafur, Guðmundur og Willum hafa unnið undanfarin ár fyrir félagið.´´
Ferill Arnars

Á árunum 1988–1997 lék Arnar 139 leiki fyrir Breiðablik og 6 leiki fyrir Leiftur.

1997–2000 lék hann 67 leiki fyrir AEK í Aþenu og varð bikarmeistari með liðinu aldamótaárið. Við tóku 157 leikir fyrir Lokeren í Belgíu á árabilinu 2000-2006.

Þá kom hann heim til Breiðabliks og lék 60 leiki á árunum 2006-2009.

Arnar lék 71 A-landsleik fyrir Íslands hönd og rúmlega 20 leiki með ungmennaliðum Íslands.

Umræðan

Fleiri fréttir

Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs

Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 og var valið kynnt við hátíðlega viðhöfn í Tónhæð, húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs.  Elísabet Berglind Sveinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs og formaður lista- og menningarráðs, afhenti

Brugðist við vopnaburði barna og ungmenna

Flýta á innleiðingu forvarnarverkefnis í KópavogiTala opinskátt um ofbeldi í öllum grunnskólum, frístund og félagsmiðstöðvum barna Menntaráð Kópavogs fjallaði um viðbrögð og forvarnir vegna ofbeldis og vopnaburðar barna og ungmenna

Heitar umræður um merki Pírata

Á aðalfundi Pírata í Kópavogi um liðna helgi var ný stjórn félagsins kjörin. Fundurinn var haldinn samhliða aðalfundum Pírata í Reykjavík, Ungra Pírata og Pírata í Suðvesturkjördæmi líkt og í

Gatnaframkvæmdir hafnar í Vatnsendahvarfi

Framkvæmdir við jarðvinnu og lagnir í Vatnsendahvarfi eru hafnar. Til að halda upp á áfangann tók bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir fyrstu skóflustungu að götunni Hæðarhvarfi. Árni Geir Eyþórsson, framkvæmdastjóri Jarðvals

Gamlar fréttir úr sarpinum

Birkir Jón
Jóhannes Birgir Jensson
dirb.1-copy
safnanott
vef17jun59
WP_20141024_10_48_43_Pro
PeturogAsa
Oli-2
kfrettir_200x200