Bæjarfulltrúar uppi á borðum

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi.

Stundum láta stórmál ekki mikið yfir sér. Þau virðast kannski ekkert sérstaklega merkileg við fyrstu sýn en þegar betur er að gáð geta þau skipt gríðarlega miklu máli. Um þessar mundir standa yfir breytingar hjá Kópavogsbæ sem eru dæmi um slíkt látlaust stórmál.

Bæjarbúar munu á næstunni geta nálgast upplýsingar um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ. Þetta hljómar kannski ekki merkilega, enda hafa reglur um slíka skráningu verið í gildi fyrir alþingismenn og borgarfulltrúa frá árinu 2009, en sveitarstjórnum er í sjálfsvald sett hvort þær setji sér slíkar reglur. Bæjarstjórn Kópavogs hefur nú loks stigið þetta tímabæra og mikilvæga skref í átt að auknu gagnsæi.

Gagnsæi gagnast öllum

Kópavogsbúar eiga rétt á vitneskju um það hvort bæjarfulltrúarnir þeirra hafi beinna hagsmuna að gæta þegar þeir taka ákvarðanir. Hvort þeir eigi nokkuð hlut í fyrirtækinu sem gerir stóran samning við Kópavogsbæ, sitji í stjórn samtaka sem fá óvænt háan styrk frá bænum eða eigi fasteignir sem margfaldast í verði eftir breytt deiliskipulag.

Öll slík tengsl eiga að vera uppi á borðum. Þannig tryggjum við virkt aðhald, komum í veg fyrir hagsmunaárekstra og spornum gegn spillingu. Með auknu gagnsæi og minna laumuspili eykst jafnframt tiltrú og traust almennings til stjórnsýslunnar.

Ítarlegt og heiðarlegt

Bæjarfulltrúar munu þannig skrá öll launuð störf, fasteignir í þeirra eigu í bænum og stjórnarsetu í félögum. Þar er einnig gert ráð fyrir að fólk greini frá því ef það hefur fengið háar skuldir afskrifaðar eða fengið aðrar „ívilnandi breytingar á skilmálum samnings við lánardrottinn“ eins og það er orðað. Þar geta enda verið ríkir hagsmunir til staðar. 

Fengi kjörinn fulltrúi t.d. hátt seljendalán til að kaupa fjölmiðil, sem seljandinn myndi einhverra hluta vegna gefa eftir, ætti það að koma fram í hagsmunaskráningunni. Bæjarfulltrúi sem á inni stóran greiða hjá lánardrottni sínum gæti nefnilega seint talist hlutlaus þegar málefni gjafmilda seljandans væru annars vegar. 

Sem fyrr segir munu bæjarbúar geta nálgast þessar upplýsingar von bráðar með tilkomu nýrra reglna um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa sem bæjarstjórn samþykkti á dögunum. Með því verður Kópavogsbær opnari og heiðarlegri en nokkru sinni fyrr.

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar