Í dag eru yfir 160 stafræn námskeið í boði í Bara tala, þar sem lögð er áhersla á starfstengt íslenskunám og íslensku sem nýtist í daglegu lífi. Verkefnið felst í þróun stafræns náms- og fagorðaforða sem gerir nemendum kleift að tileinka sér íslensku í beinu samhengi við nám sitt, hvort sem um er að ræða bóknám, tæknigreinar eða verklegt iðnnám. Með því að samþætta íslenskuna beint inn í fagnám nemenda, í stafrænu og aðgengilegu formi, er brugðist við einni helstu áskorun aðfluttra nemenda í framhaldsskólum, þar sem íslenskunámið hefur oftar verið hliðstætt náminu fremur en samofið því.

Samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands voru um 9% framhaldsskólanema árið 2024 af erlendum uppruna og er hlutfallið víða enn hærra innan einstakra námsbrauta. Fyrir þennan hóp getur skortur á sérhæfðum námsorðaforða orðið raunveruleg hindrun í námi, jafnvel þegar áhugi, hæfni og vilji til náms eru til staðar. Þörfin á hagnýtum og markvissum námsstuðningi er því mikil, sérstaklega stuðningi sem gerir nemendum kleyft að skilja námsefni, taka virkan þátt í kennslustundum og byggja upp sjálfstraust í notkun íslensku.
Í nýlegri úttekt OECD á stöðu innflytjenda á Íslandi er íslenskan sögð lykilforsenda inngildingar í samfélaginu, bæði í menntakerfinu og á vinnumarkaði. Þar kemur fram að aðeins um 18% innflytjenda á Íslandi segjast hafa góða kunnáttu í íslensku, sem er lægsta hlutfall meðal OECD-ríkja. Skortur á íslenskukunnáttu er jafnframt ein helsta ástæða þess að fólk nýti ekki menntun sína og færni til fulls. OECD leggur áherslu á að efla þurfi aðgengilegt, sveigjanlegt og hagnýtt íslenskunám sem tengist beint námi, starfi og daglegu lífi, þar sem stafrænar lausnir á borð við Bara tala gegna lykilhlutverki.
Sjá nánar: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/09/04/Ny-uttekt-OECD-um-innflytjendur-a-Islandi-Mikilvaegt-ad-setja-inngildingu-innflytjenda-a-dagskra/
Úthlutun styrksins fellur að þessari stefnumörkun og er hluti af heildstæðu átaki stjórnvalda til að efla íslensku sem annað tungumál. Mennta- og barnamálaráðherra úthlutaði nýlega tæplega 200 milljónum króna til 17 aðila sem vinna að nýjungum í íslenskunámi innflytjenda. Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, menntastefnu til 2030 og þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026, þar sem lögð er áhersla á nýjar leiðir til að tryggja jafnt aðgengi að íslenskunámi.
Í úthlutunarferlinu var lögð sérstök áhersla á samstarfsverkefni sem hafa burði til almennrar dreifingar. Með samstarfi framhaldsskólanna fjögurra og Bara tala verður til öflugt samstarfsnet sem styrkir íslenskuna þvert á skólastig og námssvið. Verkefnið er því ekki aðeins þróunarverkefni fyrir afmarkaðan hóp heldur fyrirmynd að lausn sem hægt verður að innleiða víðar innan skólakerfisins.
Sjá nánar:
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/02/05/Tvo-hundrud-milljonir-til-samstarfs-og-nyskopunar-i-islensku-fyrir-innflytjendur/
Með því að tengja tungumálið við áhugasvið og framtíðarstörf nemenda, í stafrænu formi sem er aðgengilegt hvar og hvenær sem er, er stefnt að því að rjúfa félagslega einangrun og auka tækifæri þeirra til virkrar þátttöku í samfélaginu, óháð bakgrunni. Nemendur munu ekki aðeins fá aðgang að nýjum fagnámskeiðum heldur einnig yfir 160 námskeiðum sem þegar eru til staðar í Bara tala-appinu, sem styðja við læsi, talmál og samskipti í daglegu lífi.
Innleiðing hefst í samstarfsskólunum fjórum og í kjölfarið verður lausnin opnuð öllum nemendum landsins með annað móðurmál en íslensku næsta haust.
„Markmið okkar er að gera íslenskuna aðgengilega þar sem námið fer fram, inni í kennslustofunni og í tengslum við framtíðarstörf nemenda. Með því að tengja íslenskuna beint við áhugasvið nemandans aukum við líkurnar á að hann blómstri í námi og verði virkur þátttakandi í samfélaginu,“ segir Jón Gunnar Þórðarson, framkvæmdastjóri Bara tala.
Um Bara tala
Bara tala var stofnað í júní 2023 og í dag hafa 160 fyrirtæki og 20 sveitarfélög innleitt máltækni lausnina á Íslandi. Um áramótin hóf fyrirtækið einnig starfsemi í Noregi með lausninni Bare si det, sem byggir á þeim árangri sem náðst hefur hérlendis. Bara tala hlaut verðlaunin Menntasproti atvinnulífsins árið 2024 og UT-verðlaunin 2025 í flokknum Fjölbreytileika fyrirmynd. Á dögunum opnaði Bara tala einnig í Noregi, með lausnina Bare si det, fyrir Noregsmarkað.






