Auglýsing

Freyja Bjarnadóttir vann Söngkeppni Félkó

Sigga Ózk, Freyja Bjarnadóttir og Lovísa Gísladóttir

Árleg Söngkeppni Félkó fór fram í Salnum miðvikudaginn 25.febúar við afar góðar undirtektir og ríkti þar mikil stemning. Sigurvegari keppninnar var Freyja Bjarnadóttir úr félagsmiðstöðinni Þebu sem flutti lagið All I Ask með Adele. Í öðru sæti hafnaði Lovísa Gísladóttir úr félagsmiðstöðinni Ekkó með lagið There Are Worse Things I Could Do úr söngleiknum Grease.

Þátttakendur ásamt dómnefnd, fulltrúum menntasviðs og forseta bæjarstjórnar Kópavogs, Björgu Baldursdóttur.

Björg Baldursdóttir, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, setti keppnina og afhenti verðlaun, ásamt Magnúsi Inga Árnasyni, formanni Ungmennaráðs Kópavogs. Söngkeppnin hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af árlegum hápunktum frístundastarfs félagsmiðstöðva í Kópavogi. Dómnefndina skipuðu þau Daníel Alvin, Sigga Ózk og Bára Katrín Jóhannsdóttir.

Freyja Bjarnadóttir og Lovísa Gísladóttir munu fyrir hönd félagsmiðstöðva í Kópavogi taka þátt í Söngkeppni Samfés sem fram fer 9. maí í Laugardalshöll og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,