Gert ráð fyrir að Kópavogsbær komist undir 150% skuldaviðmið árið 2017

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag. Þá var einnig lögð fram langtímaáætlun fyrir tímabilið 2016 til 2018, að því er segir í tilkynningu frá bænum.

Í áætluninni kemur fram að A-hluti bæjarsjóðs verður rekinn með 106 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári.

Sé skoðuð niðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar þá verður hún rekin með 357 milljón króna rekstrarafgangi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætluninni.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, segir fjárhagsáætlunina sýna að staða Kópavogs sé sterk.

Haldið er áfram á vegferð skattalækkana sem hófst fyrir tveimur árum. Við leggjum áherslu á að draga úr álögum á íbúa og atvinnulíf með lækkun fasteignagjalda. Þá er útsvarið undir leyfilegu hámarki annað árið í röð. Þá eru almennar gjaldskrárhækkanir 2% á milli ára sem undir verðbólguspá næsta árs sem er 3,4%. Kjarasamningar sem gerðir hafa verið á árinu, við fjölmörg stéttarfélög, hafa veruleg áhrif á reksturinn á næsta ári, en engu að síður er rekstrarafgangur í heildina séð vel við unandi. Þá er ekkert gert ráð fyrir óreglulegum tekjum eins og sölu lóða sem að öllum líkindum mun bæta stöðuna enn frekar. Þá heldur skuldahlutfall áfram að lækka sem er mjög jákvætt

Gangi áætlunin eftir verður skuldahlutfall bæjarins áramótin 2015/2016 166,6%. Gert er ráð fyrir að Kópavogsbær komist undir 150% viðmið árið 2017. Um síðustu áramót var skuldahlutfallið 185,1%.

Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015. (PDF)

Langtímaáætlun fyrir árin 2016 til 2018. (PDF)

 

Umræðan

Fleiri fréttir

Indian Food Box fagnar fimm ára afmæli

Kynning Veitingastaðurinn Indian Food Box, sem nýverið opnaði í Hamraborg, fagnar um þessar mundir fimm ára starfsafmæli sínu. Þetta markar tímamót, ekki aðeins í velgengni veitingastaðarins heldur einnig í lífi

Ryki slegið í augu bæjarbúa

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi sendi frá sér fréttatilkynningu um óstaðfest sex mánaða uppgjör sveitarfélagsins. Hughrifin af fréttatilkynningunni eru að hún ein hafi skilað hundruðum milljóna króna í plús vegna hagræðingar