Auglýsing

Gjaldskrárhækkanir í Kópavogi takmarkast við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans

Gjaldskrárhækkanir sem snúa að barnafjölskyldum í Kópavogi verða takmarkaðar við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands á árinu 2026.  Tillaga bæjarstjóra þess efnis var samþykkt í bæjarráði Kópavogs 9.apríl. Í tillögunni felst einnig að sá hluti gjaldskrárhækkana sem tóku gildi 1. apríl síðastliðinn og voru umfram 2,5% verður felldur niður. 

Markmið aðgerðanna er að stuðla að stöðugleika á vinnumarkaði, hjaðnandi verðbólgu og lækkandi vaxtastigi, til hagsbóta fyrir íbúa og samfélagið í heild. 

„Eitt mikilvægasta hagsmunamál heimila um þessar mundir er að verðbólga hjaðni og að stýrivextir lækki. Það er verulegt áhyggjuefni hvernig verðbólga hefur þróast síðustu misserin með tilheyrandi vaxtahækkun. Mikið er í húfi fyrir samfélagið allt að forsendur kjarasamninga haldi næsta haust. Með þessum aðgerðum erum við í Kópavogi að leggja okkar af mörkum til að ná tökum á verðbólgunni og um leið standa vörð um ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna í Kópavogi,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Fram kemur í greinargerð að áhrif ákvörðunarinnar á tekjur bæjarins eru óveruleg þegar horft er til gildandi fjárhagsáætlunar, hins vegar verður kostnaðurinn gríðarlegur fyrir samfélagið allt ef kjarasamningar losna.  

Ákvörðunin nær til gjaldskrár leik- og grunnskóla, þar með talið frístundar, og taka breyttar gjaldskrár gildi 1.maí næstkomandi.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir