Gunnar Birgisson kominn heim eftir hjartaaðgerð: „Væri steindauður ef ekki væri fyrir nýjustu tækni læknavísindanna.“

Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, er aftur kominn á ról eftir aðgerð á Landspítala en hann fékk vírus sem lagðist á hjartað í vor.

Gunnar Birgisson er kominn heim eftir aðgerð á Landspítalanum.
Gunnar Birgisson er kominn heim eftir aðgerð á Landspítalanum.

„Í gegnum tíðina hef ég haft þetta vandamál með háþrýstinginn sem tengist genetískri arfleið minni og holdarfari en ég hef tekið ábyrgð á því að undanförnu svo það hefur ekki háð mér. Í vor gerist það að ég fæ flensu sem verður það svakaleg að ég fæ lungnabólgu upp úr henni. Ég er þá myndaður í bak og fyrir og fæ pensilin sem ég gleypi samviskusamlega – en ég lagast ekkert.  Ég verð alltaf móður og uppgefinn. Þá er tekin sneiðmynd og kemur í ljós að lungun eru hálf full af vatni.“

-Þú hefur þá verið alvarlega veikur og í hættu staddur?

„Ef læknavísindin væru ekki eins og þau eru orðin í dag þá væri ég sjálfsagt steindauður. En það kom semsagt í ljós að vírus lagðist á hjartað sem sló þá ekki rétt. Vökvi varð eftir í lungunum þannig að ég fékk andnauð og leið alveg djöfullega. Ég fór í hjartaþræðingu og það var allt hreint. Allar kólesteróltölur úr blóðsýnum litu mjög vel út. Vandamálið var bara þetta vatn í lungunum.“

-Hvað var þá gert?

„Það þurfti að hreinsa vatnið úr lungunum og setja í mig svokallaðann Bjargráð sem sér til þess að hjartað slái alltaf í takt. Þetta er alveg ótrúleg tækni. Síðan eru lyfin orðin það góð með þessu að ég er orðinn fær í flestan sjó.“

-Og hvernig líður þér núna?

„Ég er miklu hressari og mig langar að halda aftur upp á fertugsafmælið. Hjartað í mér slær eins og Rolls Royce Turbo. Andstæðingar mínir í pólitík mega fara að vara sig því ég er orðinn miklu verri viðureignar en nokkurn tímann fyrr,“ segir Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, sem vill koma á framfæri hlýrri kveðju til alls starfsfólks Landspítalans – sérstaklega þeirra sem eru á deild 14E fyrir mikla nærgætni, fagmennsku og alúð.

Umræðan

Fleiri fréttir

Aðventuhátíð Kópavogs

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin við hátíðlega athöfn kl. 17. Jólasveinar bregða á

Fjárhagsáætlun samþykkt

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að lokinni seinni umræðu í vikunni Einnig var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2026-2028. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að

Sóley heimsmeistari

Sóley Margrét Jónsdóttir varð í síðustu viku heims­meist­ari í kraft­lyft­ing­um með búnaði í +84 kg flokki og tryggði sér um leið réttinn til að keppa á Heimsleikunum (World Games) sem

Hættum keðjuverkandi skerðingum

Ég verð bara að segja eins og er að ég var kominn með bullandi ofnæmi fyrir ríkisstjórninni og sennilega var ríkisstjórnin einnig kominn með alvarlegt bráðaofnæmi fyrir sjálfri sér. Já,