Glæsileg sýning á verkum Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur Hraunfjörð í Gerðarsafni.

Glæsileg sýning á verkum Jóhönnu Kristínar Yngvadóttur Hraunfjörð verður opnuð í Gerðarsafni laugardaginn 31. ágúst klukkan þrjú. Sýningarstjórar eru Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns, og Guðrún Atladóttir, hönnuður og menningarmiðlari. Til sýnis eru fjörutíu og fimm verk í opinberri eigu og einkaeigu eftir þennan framúrskarandi listmálara.

!cid_image001_jpg@01CEA56AJóhanna Kristín átti við heilsuleysi að stríða og lést langt um aldur fram þrjátíu og sjö ára gömul. Starfsferill hennar spannaði aðeins tíu ár.

Jóhanna Kristín hélt sína fyrstu einkasýningu vorið 1983 í Nýlistasafninu við Vatnsstíg þar sem hún sýndi tólf stór olíumálverk, meðal annars verkið Foreldrarnir. Sýningin hlaut jákvæðar viðtökur og góða gagnrýni. Einn gagnrýnandi taldi að hér væri kominn fram málari af þeirri stærðargráðu að furðu sætti af svona ungri manneskju. Hún hefði með verkum sínum haslað sér völl í fremstu víglínu listamanna hérlendis. Næstu ár dvaldi Jóhanna Kristín á Sikiley á Ítalíu, á Grænlandi og í Svíþjóð. Hún hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í samsýningum hér heima og erlendis.

Um listakonuna segir Kristín G. Guðnadóttir, listfræðingur, meðal annars í sýningarskrá: „Í íslenskri listasögu skipar Jóhanna Kristín veglegan sess sem fulltrúi hins fígúratíva expressjónisma og sem konan sem málaði konur. Dýpt og einlægni í túlkun einkenna verk hennar, sem eru máluð af miklu öryggi og krafti. Hún skapaði af sannfæringarkrafti áleitin verk sem vekja erfiðar spurningar sem sumum hverjum verður seint svarað.”

Guðrún Atladóttir, bróðurdóttir Jóhönnu Kristínar, hefur gert heimildamynd um listakonuna sem ber heitið Svartur er litur gleðinnar. Á sýningunni verður sýnd styttri mynd eftir Guðrúnu sem fjallar um listsköpun Jóhönnu Kristínar. Sú mynd heitir Minningin er blá.

Sýningin stendur yfir til 13. október.

Því má bæta við að um helgina verður opnaður nýr og bættur vefur Gerðarsafns en nánari upplýsingar um opnunartíma, safnabúðina og aðrar sýningar má finna á vefnum: www.gerdasafn.is

 

Umræðan

Fleiri fréttir

Lyfjaskolp við Gvendarbrunna – skipulagsslys við Gunnarshólma

AðsentMeirihluti bæjarstjórnar Kópavogs hefur samþykkt að skoða alvarlega áform um að reisa heilsutengt ofurþorp fyrir 15.000 manns við Gunnarshólma, í miðju vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Svæðið er þekkt flóðasvæði þar sem áin Suðurá flæðir

Íbúar völdu saunur og skautasvell

Infrarauðar saunur og yfirbyggðir stigar í rennibrautir beggja sundlauga Kópavogs, vélfryst skautasvell í Kópavogsdal, bleikir bekkir til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur, aðstaða til sjósunds á Kársnesi og endurnýjun og

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar