Auglýsing

Leikskólar í Kópavogi í máli og myndum

Myndbönd sem kynna starf og áherslur allra leikskólanna í Kópavogi eru nú aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar. Í þeim segja leikskólastjórnendur og starfsmenn frá helstu áherslum og faglegri sýn í starfi skólanna. Myndböndin verða nýtt til kynningar á því starfi sem fram fer í leikskólum Kópavogs, sérstöðu hvers og eins leikskóla, og náminu sem þar fer fram í gegnum leik barna.

„Myndböndin varpa ljósi á það frábæra starf sem er unnið innan skólanna. Þau munu vonandi nýtast foreldrum og öðrum til upplýsingar um skólana og veita innsýn í það frábæra starf sem fram fer í leikskólum og hvernig það auðgar líf barna og fjölskyldna þeirra,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs

Í Kópvogi hefur verið unnið markvisst að umbótum í leikskólum bæjarins undanfarin ár með það að sjónarmiði að styrkja starfsumhverfi skólanna og til að auka gæði starfsins fyrir börn og starfsmenn. Meðal þess sem lögð hefur verið áhersla á eru endurbætur á húsnæði og aðbúnaði, skemmtilegri skólalóðir, aukin tækifæri til menntunar starfsfólks, meira rými fyrir börn, hollur matur og stöðuga þróun í faglegu starfi.

Kópavogsbær rekur nítján leikskóla, þar sem 2000 mörg börn dvelja að jafnaði. Alls starfa um 700 starfsmenn í leikskólum bæjarins, en þar af eru um það bil 37% menntaðir leikskólakennarar. 

„Við vonumst sannarlega til þess myndböndin styðji okkur í því að laða að enn frekar að gott fólk til starfa í leikskólum í Kópavogi. Starfsmenn í leikskólum vinna með börnunum okkar á mikilvægustu mótunarárum þeirra og það er því afar mikilvægt að hlúa vel að starfsumhverfi þeirra. Við vonumst jafnframt til þess að myndböndin hvetji fólk til að fara í nám í leikskólakennarafræðum, við þurfum öll sem samfélag að leggja áherslu á að fjölga leikskólakennurum,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs í Kópavogi.

Myndböndin eru aðgengileg vefsíðu Kópavogsbæjar.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Vinstri græn og óháð bjóða fram lista

Vinstri græn hafa ákveðið að bjóða fram lista undir merkjum Vinstri grænna og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG, mun leiða listann. Framboðslistinn verður kynntur í heild sinni