Hér kemur nýjasta nýtt frá Gísla Marteini þar sem hann telur sig hafa ná að móðgað Kópavogsbúa: „Mér finnst miðborg Reykjavíkur hafa yfirburði yfir miðbæ Kópavogs fyrir ferðamenn, þetta er mín skoðun og ég nenni ekki að reyna að fela hana með einhverju skrumi.“
Nú er Gísli farinn að tala um miðbæ Kópavogs. Ég veit ekki af hverju. Það var ekkert í umræðunni heldur frekar þessi ummæli hans á fjölmennri ráðstefnu hjá Landsbanka Íslands: „Ég bið til guðs að einhver túristi lendi ekki í því að vera á einhverju glötuðu hóteli í Kópavogi, fyrirgefið þið. Vegna þess að hann verður bara brenndur af því. Það er ekki gaman þar.“
Ég held að fáir Kópavogsbúar hafi móðgast við þessi ummæli. Þetta varðar miklu frekar hagsmuni. Svona ummæli eru mjög óábyrg og reyndar miður því á sama tíma er verið að funda með fólki sem vill hugsanlega opna hótel í Kópavogi. Reyndar er þetta dæmigerð umræða sem einkennist af því að fólk veit ekki og þekkir ekki.
Við erum vissulega með hótel í Kópavogi og fjölmörg fín gistiheimili. Kópavogur hefur verið að sérhæfa sig í íþróttatengdri ferðaþjónustu. Við erum að undirbúa alþjóðleg íþróttamót, (handbolta-, fótbolta-, körfuboltamót, þríþraut, sund ofl). Við erum með óvenju góða íþróttaaðstöðu til að sinna þessu. Gestir í Kópavogi gætu verið nokkur þúsund bara í þeim verkefnum. Fjölbreytileikinn er mikill hjá okkur og við erum með allt annan markhóp en Reykjavík. Það má ekki gleyma að þessi verkefni hafa líka góð áhrif á Reykjavík því við gerum ráð fyrir að gestir okkar fari einnig þangað. Þetta erum við að gera í góðri samvinnu við ýmis félög, fyrirtæki og hagsmunasamtök.
Mig langar að gefa ykkur dæmi um kvennaferðir erlendra kvenna sem koma í sundlaugaferð til Íslands. Þær versla, fara á hestbak, í gönguferðir og njóta veitingastaða. Allt þetta geta þær gert í Kópavogi. Gist til dæmis á Kríunesi, sem er í yndislegu umhverfi við Elliðavatn. Það er himneskur staður að vera á. En auðvitað skreppa þær til Reykjavíkur yfir hádaginn en vilja vera í sundi á kvöldin í myrkrinu og horfa upp í himininn. Þetta er „eitthvað annað“ og sennilega ólíkt 101 ferðamönnum. Þetta er aðeins eitt dæmi um ferðamenn í Kópavogi.
Kópavogur mun ekkert skemma fyrir ferðaþjónustunni á Íslandi, það er alveg klárt. Við viljum samt ekki að það sé verið að skemma fyrir okkur.
Sumir (eins og GMB) eru mjög lokaðir í sínum heimi og loka augunum fyrir fjölbreytileikanum og ólíkum tækifærum. Það eru nefnilega ekki allir eins. Nýbúið er að verja 76,3 milljónum í að gera sóknaráætlun fyrir Höfuðborgarsvæðið. Samkvæmt þeirri áætlun eigum við meðal annars að líta á höfuðborgarsvæðið sem eitt svæði. Vörumerkið „Reykjavík“ á að standa fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Ég lít á slíkt samstarf jákvæðum augum enda er það win/win fyrir alla frekar en að skipta höfuðborgarsvæðinu með einhverjum óljósum landamærum.
Við skulum líka minna okkur á að tala ekki sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu niður. Mörg sveitarfélög eru í mjög skemmtilegum verkefnum, sérhæfa sig í ákveðinni þjónustu, marka sér ákveðna stefnu, nýta tækifærin og vinna í því sem þau eru best í. Máli mínu til stuðnings þá hvet ég fólk til þess að fara inn á https://www.facebook.com/CupKopavogur. Þar er að finna upplýsingar um alþjóðlegt handboltamót CUP KÓPAVOGUR 2014 sem haldið verður næsta sumar í Kópavogi.
Þetta innlegg inn í umræðuna verður vonandi til þess að við vöndum okkur, hlustum á rök annarra með opnum huga, forðumst að líta á nágranna okkar sem andstæðinga og náum góðum árangri saman.
-Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar í Kópavogi.