RIFF á menningartorfu Kópavogs

Hjálmar Hjálmarsson, Karen E. Halldórsdóttir, Hrönn Marinósdóttir og Una Björg Einarsdóttir. Karen, Una og Hjálmar sitja í lista- og menningarráði Kópavogs en Hrönn er stjórnandi RIFF.

Dagskrá RIFF – Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík fer að hluta fram í menningarhúsum Kópavogsbæjar í haust. Samkomulag um samstarf Listhúss Kópavogsbæjar, lista- og menningarráðs og RIFF var undirritað nýlega. Framlag lista- og menningarsjóðs til hátíðarinnar nemur 3,5 milljónum króna.

Hjálmar Hjálmarsson, Karen E. Halldórsdóttir, Hrönn Marinósdóttir og Una Björg Einarsdóttir. Karen, Una og Hjálmar sitja í lista- og menningarráði Kópavogs en Hrönn er  stjórnandi RIFF.
Hjálmar Hjálmarsson, Karen E. Halldórsdóttir, Hrönn Marinósdóttir og Una Björg Einarsdóttir.
Karen, Una og Hjálmar sitja í lista- og menningarráði Kópavogs en Hrönn er
stjórnandi RIFF.

Kvikmyndir fyrir börn verða sýndar í Bókasafni Kópavogs, auk þess sem viðburðir tengdir kvikmyndum verða á fleiri stöðum á torfunni, m.a. í Salnum og Tónlistarhúsi Kópavogs. Þá verða í boði námskeið í kvikmyndagerð fyrir ungt fólk.  Dagskráin í Kópavogi er unnin í góðu samstarfi forsvarsmanna RIFF, lista- og menningarráðs og forstöðumanna menningarhúsa bæjarins. Dagskráin verður auglýst nánar er nær dregur.

Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF segist afar þakklát og ánægð með samvinnuna við Kópavogsbæ:

Kópavogsbær hefur löngum verið þekktur fyrir öflugt menningar- og listalíf, og það er einlæg von mín og trú að kvikmyndalistin og Kópavogur muni auðga hvort annað á komandi árum. Kópavogsbúar geta nú fengið margt af því besta sem er að gerast í kvikmyndaheiminum í næsta nágrenni við sig, og hver veit nema erlendir leikstjórar finni nýjan innblástur þar.

Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs segir að með samstarfinu við RIFF mun bætast við flóru líflegs lista- og menningarlífs bæjarins:

Með því gefum við Kópavogsbúum og öðrum gestum ekki einungis færi á að njóta alþjóðlegrar kvikmyndagerðar heldur drögum við jafnframt fram þá frábæru aðstöðu til menningar og lista, sem finna má á menningartorfu bæjarins.

RIFF er einn af stærstu og fjölbreyttastu menningarviðburðum á Íslandi. Hátíðin setur unga kvikmyndagerðarmenn og framsækna kvikmyndagerð á oddinn. Hátíðin í ár er sú ellefta í röðinni og mun hún standa frá 25.september – 5. október 2014.

Una Björg Einarsdóttir, Hrönn Marinósdóttir, Karen E. Halldórsdóttir og Hjálmar HjálmarssonDagskráin í Kópavogi er unnin í góðu samstarfi forsvarsmanna RIFF, lista- og menningarráðs og forstöðumanna menningarhúsa bæjarins.
Una Björg Einarsdóttir, Hrönn Marinósdóttir, Karen E. Halldórsdóttir og Hjálmar HjálmarssonDagskráin í Kópavogi er unnin í góðu samstarfi forsvarsmanna RIFF, lista- og menningarráðs og forstöðumanna menningarhúsa bæjarins.

Umræðan

Fleiri fréttir

Indian Food Box fagnar fimm ára afmæli

Kynning Veitingastaðurinn Indian Food Box, sem nýverið opnaði í Hamraborg, fagnar um þessar mundir fimm ára starfsafmæli sínu. Þetta markar tímamót, ekki aðeins í velgengni veitingastaðarins heldur einnig í lífi

Ryki slegið í augu bæjarbúa

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi sendi frá sér fréttatilkynningu um óstaðfest sex mánaða uppgjör sveitarfélagsins. Hughrifin af fréttatilkynningunni eru að hún ein hafi skilað hundruðum milljóna króna í plús vegna hagræðingar