Sigvaldi Egill sækist eftir 2.-.3- sæti í prókjöri Sjálfstæðisflokksins

Sigvaldi Egill Lárusson, fjármála- og rekstrarstjóri og frambjóðandi í 2.-.3 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Kæru Kópavogsbúar, ég hef ákveðið að bjóða fram krafta mína til að þjónusta íbúa Kópavogs og býð mig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.

Ástæða þess að ég býð fram þjónustu mína er brennandi áhugi á að hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið. Að vera stöðugt að leita leiða til að gera enn betur og bæta þjónustu við íbúa bæjarins.

Áherslumálin mín eru fyrst og fremst málefni fjölskyldunnar, leikskólamálin, velferðarmál og hagkvæmni og skilvirkni í rekstri með sem lægstar álögur á íbúa og fyrirtæki.

Ég legg metnað minn í það að umgjörð og þjónusta við fjölskyldur og sérstaklega barnafólk í Kópavogi verði með besta móti og við séum stöðugt að leita leiða til að gera þar enn betur. Ég tel að með þessu bætum við samfélagið okkar, aukum lífsgæði hjá ungum sem öldnum og löðum til okkar fjölbreyttar fjölskyldur í bæinn.

Ég er 36 ára gamall og bý á Kársnesinu í Kópavogi. Ég hef starfsreynslu bæði frá einkageiranum og þeim opinbera. Ég hef starfað samanlagt í 6 ár sem fjármálastjóri hjá tveimur opinberum stofnunum og núverandi starf mitt er fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar. Ég starfaði í 10 ár hjá Landsbankanum, síðast sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði.

Ég er með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands.

Ég er í sambúð með Hrefnu Sif Jónsdóttur framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Tix. Við Hrefna eigum tvö börn, þau Elmu Margréti, sem verður 8 ára í sumar og Lárus Heiðberg, en hann verður 3 ára í mars. 

Ég tel að reynsla mín, menntun og það viðhorf að vera stöðugt að gera betur hafi fullt erindi í bæjarstjórn Kópavogs með það að markmiði að þjónusta íbúa bæjarins sem best með þeirra hagsmuni ávallt að leiðarljósi.

Ábyrgur rekstur skilar betri þjónustu til þín.

Umræðan

Fleiri fréttir

Gnitaheiði er gata ársins

Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi

Flautukórinn í frægðarför

„Við komum heim með fullt af gulli, silfri og bronsi rétt eins og á Ólympíuleikunum,” segir kampakát Pemela De Sensi, flautukennara Tónlistarskólans í Kópavogi. Flautukór kórsins lagði nýverið Sikiley á

Líf og fjör á Hamraborgarhátíð

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri Hamraborgarhátíðarinnar í ár. Agnes útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 en stundar nú nám í sýningastjórnun við Háskóla Íslands. Agnes sýndi

Gunnar Helgason.

Bókasafn Kópavogs í haust

Haustið ber með sér rútínu, kertaljós og appelsínurauða tóna, en á Bókasafni Kópavogs er dagskráin að fara í gang með vinsælum viðburðum fyrri ára í bland við nýja og spennandi

Gamlar fréttir úr sarpinum

Fovarnaruthlutun2020
Justin_Timberlake_Cannes_2013
Birkir Jón
Landsbankinn
nem2014
Bæjarstjórar Kópavogs
Bergljot Kristinsdottir
Karen Elísabet Halldórsdóttir.