Tímamót í björgunarmálum

Rafnar ehf á Kársnesi afhenti um síðustu mánaðarmót Hjálparsveit skáta í Kópavogi nýjan 11 metra leitar- og björgunarbát en um algjör tímamót er að ræða, enda er þetta fyrsti sérsmíðaði björgunarbáturinn á Íslandi frá upphafi. Báturinn, sem hlotið hefur nafnið Stefnir, byggir á byltingarkenndri hönnun og hefur mikla þýðingu fyrir björgunar- og leitarstarf við landið.  „Stefnir boðar tímamót í björgunarstarfi, enda er þetta í fyrsta sinn sem björgunaraðilar á Íslandi fá björgunar- og leitarbát sem er sérsmíðaður á Íslandi. Þeir bátar sem hingað til hafa verið verið til staðar, hafa komið notaðir til landsins, helst frá Bretlandi. Sá yngsti er nú 17 ára og sá elsti 37 ára og munar um minna að fá nú sérhæfðan og splunkunýjan bát,“ segir Kristján Maack, formaður Hjálparsveitar skáta í Kópavogi. Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Rafnar ehf segir bátinn vera fyrsta leitar- og björgunarbát í Leiftur seríu fyrirtækisins en hann hefur verið hannaður og prófaður í samvinnu við Hjálparsveitina. „Hann nær 40 hnútum og hefur sæti fyrir 6 og hægt er að koma fyrir tveimur sjúkrabörum. Þetta er vonandi bara fyrsta skrefið í að efla til muna öryggi við strendur landsins með endurnýjun björgunarbátaflotans,“ segir Björn.

stefnir_0001-2

Stefnir

Rafnar ehf afhendi Landhelgisgæslunni fyrir skömmu nýjan strandgæslubát, en hann gerir Landhelgisgæslunni kleift að bregðast við aðstoðarbeiðnum á grunnslóð með skjótari hætti.

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Fleiri fréttir

Kópavogsblaðið komið út

Stolt Kópavogs eru á forsíðu Kópavogsblaðsins að þessu sinni. Karlalið Breiðabliks er komið í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir að hafa slegið út Struga frá Norður-Makedóníu. Blikar leika sex leiki í

Mygla hjá velferðarsviði

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því

Stuð á Hamraborg Festival

Hamraborg Festival fór fram í lok ágúst í Hamraborg og í menningarhúsunum í Kópavogi, en Hamraborg Festival er þverfagleg hátíð með sérstakri áherslu á myndlist, staðbundin verk, gjörningalist og samfélagslega

Króníkan opnar í Gerðarsafni

Veitingastaðurinn Króníkan opnaði í sumar í Gerðarsafni. Samningur við nýjan rekstraraðila var undirritaður 11.maí, á afmælisdegi Kópavogsbæjar. Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir, systkini úr Vesturbæ Kópavogs, hafa tekið reksturinn að sér