Auglýsing

Vináttuganga í Kópavogi

Vel tókst til í Vináttuganga sem fram fór í skólahverfum í Kópavogi á baráttudegi gegn einelti, fimmtudeginum 8.nóvember. Gangan fór nú fram í sjötta sinn og var boðið upp á dagskrá í skólahverfum bæjarins í tengslum við gönguna. 

Markmið Vináttugöngunar er að stuðla að jákvæðum samskiptum.

Markmið Vináttugöngunnar er að stuðla að jákvæðum samskiptum, vekja athygli á mikilvægi vináttu og virðingar og benda á að einelti er ofbeldi sem ekki verður liðið. Gangan eflir samstöðu og vináttu barna og hefur þannig haft jákvæð áhrif á skólastarf í bænum. Með göngunni  leggur Kópavogsbær sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn einelti.
Yfir átta þúsund tóku þátt í göngunni og voru nemendur, kennarar og aðrir þátttakendur afar ánægðir með hvernig til tókst.

Vináttubangsinn Blær var að þessu sinni staddur í Vatnsendahverfi en börn í Kópavogi þekkja hann vel frá Vináttuverkefni Barnaheilla.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Orri Vignir Hlöðversson bæjarfulltrúi og er í 1.sæti Framsóknar í Kópavogi Björg Baldursdóttir bæjarfulltrúi og er í 2.sæti Framsóknar í Kópavogi.

Byggjum á árangri, ekki loforðum

„Kópavogur, okkar heimili“ er ekki bara slagorð okkar hjá Framsókn. Það er sýn á samfélag þar sem fólki líður vel, fjölskyldur finna öryggi og við byggjum áfram upp bæ sem við getum öll