Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja til við bæjarstjórn að hún heimili bæjarstjóra að ganga til samninga um kaup á 3.489 fermetrum í Nýja Norðurturninum við Smáralind. Bæjarráð samþykkti einnig að heimila bæjarstjórn að skuldabréfaflokkur Kópavogsbæjar, KOP 15-1, sem er opinn, verði stækkaður um 1.500.000.000 kr. að nafnvirði. Flokkurinn er til 25 ára, með fjóra gjalddaga á ári. Tillagan var samþykkt með fyrirvara um að endanlegur kaupsamningur verði lagður fyrir bæjarráð til samþykkis. Bæjarráð samþykkti með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn fundaði með börnum og ungmennum
Bæjarstjórn Kópavogs fundaði með fulltrúum ungmennaráðs og grunnskólabarna bæjarins þriðjudaginn 12.maí. Á fundinum voru lagðar fram tillögur Barna- og ungmennaþings en það er einn af hornsteinum barnvæns sveitarfélags, eins og Kópavogur er, að börn




