Auglýsing

Endurbætt húsnæði fyrir fatlaða tekið í notkun

Dimmuhvarf í Kópavogi, heimili fyrir sex fatlaða einstaklinga, var nýverið tekið í notkun á nýjan leik eftir gagngerar endurbætur.  Endurbætt húsnæði var vígt formlega í dag við hátíðlega viðhöfn.

„Það er ánægjulegt hversu vel hefur tekist til með breytingar á húsnæðinu sem fellur nú betur að þörfum íbúa en áður. Kópavogsbær hefur lagt sig fram um að sinna vel málefnum fatlaðra frá yfirtöku málaflokksins,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs við tækifærið.

Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs, Karen Halldórsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Kjartan Ólafsson forstöðumaður Dimmuhvarfs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Guðlaug Ósk Gísladóttir, yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra, Sverrir Óskarsson, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar.
Aðalsteinn Sigfússon, sviðsstjóri velferðarsviðs, Karen Halldórsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Kjartan Ólafsson forstöðumaður Dimmuhvarfs, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Guðlaug Ósk Gísladóttir, yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra, Sverrir Óskarsson, bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar.

Dimmuhvarf kom í hlut bæjarins við yfirtöku málefna fatlaðra frá ríkinu árið 2011 en var í slæmu ásigkomulagi. Við endurbætur var skipt um allt hitakerfi, gólfefni, loftklæðningar og innréttingar. Skipulagi íbúða var breytt þannig að betur var gætt að sjálfstæði íbúanna en sameiginlegt rými var minnkað.

Kópavogsbær tók við málefnum fatlaðs fólks af ríkinu í ársbyrjun 2011. Þá lá fyrir biðlisti 40 einstaklinga eftir húsnæði með sértækri þjónustu. Bæjarfélagið hóf strax vinnu við að tryggja nauðsynlegar úrbætur.  Þrír nýir þjónustukjarnar hafa verið teknir í notkun frá yfirfærslu. Þá eru framkvæmdir hafnar að byggingu fjögurra nýrra íbúða.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Barnaþingmenn, ungmenni og bæjarstjórn Kópavogs.

Bæjarstjórn fundaði með börnum og ungmennum

Bæjarstjórn Kópavogs fundaði með fulltrúum ungmennaráðs og grunnskólabarna bæjarins þriðjudaginn 12.maí. Á fundinum voru lagðar fram tillögur Barna- og ungmennaþings en það er einn af hornsteinum barnvæns sveitarfélags, eins og Kópavogur er, að börn