Auglýsing

Metþátttaka í Okkar Kópavogi

Eftirlitsmyndavélar í Lindahverfi er meðal þess sem íbúar Kópavogs völdu áfram í kosningum í verkefninu Okkar Kópavogur. Meðal annars sem íbúar kusu má nefna  rathlaupabraut í Fossvogi, körfuboltavöll við Hörðuvallaskóla, hjólastæði við Smáraskóla og leiktæki á Rútstúni.  

Metþátttaka var í kosningunum, sem stóðu frá 25.janúar til 5. febrúar, eða 18% sem er mesta þátttaka sem hefur verið í sambærilegum kosningum á Íslandi. Hlutfallslega flestir kusu í Linda- og Salahverfi eða 24%.

Alls hlutu 37 hugmyndir brautargengi en 200 milljónum verður varið í verkefnin. Framkvæmd þeirra hefjast í vor en lýkur á næsta ári.

Rúmlega 5.000 manns tóku þátt í kosningunni sem er 18% Kópavogsbúa 16 ára og eldri. Tæplega 60% þátttakenda voru konur, ríflega 40% karlar. Þátttekendur á aldrinum 31-40 voru fjölmennastir, 1.558 eða eða 31%, fast á hæla fylgdi aldurshópurinn 41-50 eða 1.531. 

Síðast þegar kosið var í Okkar Kópavogi tóku 3.500 manns þátt eða 12,5% þeirra sem hafa kosningarétt. Kjósendum fjölgar þannig um ríflega 1.500 manns eða 43%.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Vinstri græn og óháð bjóða fram lista

Vinstri græn hafa ákveðið að bjóða fram lista undir merkjum Vinstri grænna og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG, mun leiða listann. Framboðslistinn verður kynntur í heild sinni