Sjö framboðslistar eru komnir fram við sveitarstjórnarkosningar í Kópavogi 16. maí nk. Vita kjósendur hvert framboðin vilja stefna í helstu málefnum bæjarfélagsins?
Upplýsandi umræða er forsenda virks lýðræðis. Þess vegna hefur félagið Vinir Kópavogs boðið oddvitum framboða til bæjarstjórnar Kópavogs til opins fundar í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum, miðvikudaginn 13. maí kl. 17:00. Á fundinum verður fjallað um málefni sem brenna á Kópavogsbúum og leitað svara hjá oddvitunum.
Fjölmiðlakonan góðkunna Eyrún Magnúsdóttir stjórnar fundinum. Fundurinn verður í beinni útsendingu á fésbókarsíðu Vina Kópavogs og verður tekinn upp og gerður aðgengilegur á netinu.
Eftirfarandi hafa verið boðaðir á fundinn til að standa fyrir svörum:
· Orri Vignir Hlöðversson, B-lista
· María Ellen Steingrímsdóttir, C-lista
· Ásdís Kristjánsdóttir, D-lista
· Markús Candi, J-lista
· Einar Jóhannes Guðnason, M-lista
· Jónas Már Torfason, S-lista
· Anna Sigríður Hafliðadóttir, V-lista
Kallað er eftir ábendingum bæjarbúa um þau mál sem þeir telja mikilvægt að sett verði á dagskrá fundarins. Ábendingar má senda á netfangið tryggvifel@gmail.com.
Frekari upplýsingar veitir Tryggvi Felixson í síma 699 2682.






