Auglýsing

Tryggvi Guðmunds sér um æfingu hjá HK

HK-menn hefja undirbúningstímabilið þjálfaralausir.
HK-menn í baráttunni í sumar. Undirbúningstímabilið hefst á morgun en liðið er ennþá án þjálfara. 

Undirbúningstímabil meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá HK hefst á morgun, föstudaginn 1. nóvember, þar sem liðið býr sig undir slaginn í 1. deildina að ári. Það verða þeir Tryggvi Guðmundsson, leikmaður meistaraflokks, og Bryngeir Torfason, þjálfari 2. flokks, sem stjórna fyrstu æfingunni sem  fer fram í Kórnum annað kvöld.

Ekki er búið að ganga frá ráðningu þjálfara í stað Gunnlaugs Jónssonar en Þórir Bergsson formaður meistaraflokksráðs karla sagði við HK-vefinn að unnið væri að því að koma þeim málum á hreint.

„Málin eru í góðum farvegi og þau skýrast vonandi á allra næstu dögum. Aðalatriðið í dag er að okkar leikmenn hefji æfingarnar af krafti frá og með morgundeginum og byrji að búa sig undir skemmtilegt og spennandi tímabil sem við eigum fyrir höndum í 1. deildinni. Það er mikill hugur í öllum sem að þessu koma að gera hlutina vel,“ sagði Þórir Bergsson í samtali við hk.is.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Hvað er í boði í Kópavogi?

Sjö framboðslistar eru komnir fram við sveitarstjórnarkosningar í Kópavogi 16. maí nk. Vita kjósendur hvert framboðin vilja stefna í helstu málefnum bæjarfélagsins? Upplýsandi umræða er forsenda virks lýðræðis. Þess vegna hefur félagið Vinir