Auglýsing

Fjölbreytt dagskrá á Kópavogsdögum

Kópavogsdagarnir eru frá 8 - 11 maí.
Kópavogsdagarnir eru frá 8 - 11 maí.
Samkór Kópavogs tók lagið við sundlaugabakkann á Kópavogsdögunum í fyrra. Í ár verða Kópavogsdagarnir frá 8 – 11 maí.

Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast 8. maí og standa yfir til 11. maí. Í boði eru fjölbreyttir viðburðir sem ættu að höfða til fólks á öllum aldri. Má þar nefna pönkhátíð á Spot og í Molanum, ævintýraleikrit fyrir börn í Bókasafni Kópavogs, djass og franskar aríur í Tónlistarsafni Íslands, spuna og leik í húsnæði Leikfélags Kópavogs og veggjalist í Hamraborginni.

Ljóð fljóta í sundlaugum bæjarins og Karlakór Kópavogs ætlar að vera á rúntinum á laugardeginum og syngja fyrir gesti víða um bæ. Þetta er í ellefta sinn sem hátíðin er haldin.

Á síðasta degi hátíðarinnar verður upplýst um útnefningu heiðurslistamanns og bæjarlistamanna. Athöfnin fer fram í Gerðarsafni. Lista- og menningarráð hefur frá árinu 1988 valið heiðurslistamann en í fyrsta sinn nú eru jafnframt útnefndir bæjarlistamenn.

Með fyrrnefnda valinu er verið að heiðra listamann fyrir ævistarf en með síðarnefnda valinu er verið að velja efnilega listamenn til að sinna ákveðnu fræðslu – og menningarstarfi.

Nánar má lesa um Kópavogsdagana á vef bæjarins hér.

 

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Vinstri græn og óháð bjóða fram lista

Vinstri græn hafa ákveðið að bjóða fram lista undir merkjum Vinstri grænna og óháðra í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti VG, mun leiða listann. Framboðslistinn verður kynntur í heild sinni