Embætti Sýslumannsins í Kópavogi notar ekki réttan listabókstaf fyrir framboð Bjartrar framtíðar í utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bjartri framtíð í Kópavogi sem segist hafa þetta eftir áreiðanlegum heimildum. Þrír mismunandi aðilar, sem greitt hafa atkvæði utankjörstaðar í Kópavogi, hafi staðfest þetta við flokkinn. Björt framtið hafi þar á atkvæðaseðli fengið listabókstafinn A en á fundi kjörstjórnar í Kópavogi 10. maí síðastliðinn samþykkti kjörstjórnin að Björt framtíð í Kópavogi, og reyndar framboð Bjartrar framtíðar um allt land, fengi bókstafinn Æ.

Hvað er í boði í Kópavogi?
Sjö framboðslistar eru komnir fram við sveitarstjórnarkosningar í Kópavogi 16. maí nk. Vita kjósendur hvert framboðin vilja stefna í helstu málefnum bæjarfélagsins? Upplýsandi umræða er forsenda virks lýðræðis. Þess vegna hefur félagið Vinir







