Álmu í Álfhólsskóla, Hjalla, lokað vegna myglu

Mygla er í álmu 5 í Álfhólsskóla, Hjalla sem þýðir að endurskipuleggja þarf kennslu.

Einni álmu Álfhólsskóla var lokað frá og með fimmtudeginum 4.mars s.l vegna myglu sem greindist í þaki byggingarinnar. Lokunin var gerð sem  varúðarráðstöfun til að vernda nemendur og starfsmenn. 

Um er að ræða þann hluta húsnæðis Álfhólsskóla, Hjalla, sem kallast álma 5 og stendur í norðvesturhorni lóðar Álfhólsskóla, Hjalla, alveg við Álfhólsveg. Byggingin hýsir meðal annars stofur fyrir list- og verkgreinar auk sérkennslustofa. Álma 5 nær yfir um fjórðung Álfhólsskóla, Hjalla, að flatarmáli eða 1.130 fermetra. Í Álfhólsskóla, Hjalla, eru 5. til 10. bekkur Álfhólsskóla, alls um 400  nemendur. 

Stjórnendur Álfhólsskóla vinna nú ásamt kennurum og öðru starfsfólki að endurskipulagningu á kennslu sem raskast óneitanlega þegar loka þarf heilli álmu. Niðurstaða endurskipulagningar mun liggja fyrir á allra næstu dögum en tekið skal fram að nemendum verður tryggð kennsla.

Ákvörðunin um lokun er tekin í kjölfar þess að myglusveppur hefur greinst í þaki álmunnar. Einnig mælist hækkaður raki undir botnplötu sem að öllum líkindum rekja má til stíflu sem fannst í drenlögn vestan við húsið. Verið er að greina sýni sem tekin voru úr gólfdúk til að kanna hvort mygla hafi náð fótfestu undir dúknum. 

Aðdragandi lokunarinnar er sá að starfsmaður fór að finna fyrir einkennum sem fylgja raka- og mygluskemmdum. Eftirgrennslan leiddi í ljós raka undir gólfdúk sem strax var gengið í að laga. Í framhaldinu var ákveðið að fara í ítarlegri skoðun á húsnæðinu og kom þá í ljós að það greindist myglusveppur í þaki álmunnar. Verið er að rannsaka hvort myglan hefur náð að hafa áhrif á loftgæði í kennslustofum, niðurstaða liggur ekki fyrir, en með öryggi nemenda og starfsfólks að leiðarljósi er álmunni lokað frá og með morgundeginum. 

Ekki er talið að um sambærilegar aðstæður sé að ræða í öðrum álmum byggingarinnar, samkvæmt tilkynningu frá Kópavogsbæ, þar sem þakuppbygging er ólík. Þak álmu 5  hefur þá sérstöðu að þar er upphitað rými á 2. hæð og einangrað milli sperra. Í álmu 1.-4. er loftrýmið kalt og einangrað beint ofan á steyptar loftaplötur. Engu að síður verða tekin sýni í öðrum hlutum hússins og send til frekari greininga. 

Ákvörðun um lokun var tekin af skólastjórnendum í samráði við stjórnendur á mennta- og umhverfissviði Kópavogsbæjar um leið og niðurstöður mælinga lágu fyrir og kynnt starfsfólki, stjórn foreldrafélagsins og skólaráði á fundum miðvikudaginn 3.mars og bréf sent á foreldra. Skólastjórnendur munu hitta alla nemendur á morgun, fimmtudag, og útskýra málið.

Þá er unnið að undirbúningi útboðs fyrir endurbætur en stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið  áður en skólastarf hefst að nýju að loknu sumarleyfi. 

Umræðan

Fleiri fréttir

Ársreikningur staðfestur

Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti ársreikning ársins 2024 á fundi sínum 13.maí að lokinni síðari umræðu um ársreikninginn. Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 10.apríl og vísað til fyrri umræðu í

Nýtt dómsmál í 70 ára afmælisgjöf

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi fór mikinn og fagnaði 4,5 milljarða króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu í ársreikningi bæjarins fyrir skemmstu og hældi sér af bestu niðurstöðu í heil 17 ár. Sú niðurstaða

Götuganga í sumarblíðu

Götuganga Virkni og vellíðan í Kópavogi fór fram mikilli veðurblíðu í dag. Gangan er nú haldin í þriðja sinn og tóku tæplega 300 þátt í göngunni sem hófst og lauk