Dagur Kári Ólafsson fimleikamaður úr Gerplu og Birta Georgsdóttir knattspyrnukona úr Breiðabliki voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2025. Í kjörinu eru það atkvæði lýðheilsu- og íþróttanefndar sem gilda 60% en íbúakosning 40%.
Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum fimmdaginn 8. janúar. Fengu þau að launum farandbikar og eignarbikar jafnframt því sem Björg Baldursdóttir forseti bæjarstjórnar Kópavogs afhenti þeim hvoru um sig 300 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá Kópavogsbæ.
Dagur Kári og Birta voru valin úr hópi 46 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu lýðheilsu- og íþróttanefndar eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum.
Fjölmargar viðurkenningar voru veittar á íþróttahátíðinni til íþróttafólks sem skaraði framúr á árinu 2025. Meðal annars voru veittar viðurkenningar til einstaklinga 17 ára og eldri og til 13-16 ára. Þá var meistaraflokkur Breiðabliks í knattspyrnu kvenna flokkur ársins.
Nánar um íþróttafólk ársins:
Birta Georgsdóttir
Birta átti frábært tímabil með liði sínu Breiðabliki, þar sem hún varð ásamt liðsfélögum sínum bæði Íslands- og bikarmeistari í knattspyrnu kvenna. Hún var í lok tímabils valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna og varð næstmarkahæst í deildinni með 18 mörk og 7 stoðsendingar. Birta og liðsfélagar hennar hafa einnig átt góðu gengi að fagna í evrópuleikjum sínum á árinu. Nú í lok árs tryggði liðið sér sæti í fjórðungsúrslitum UEFA Women’s Europa Cup og mætir liði Häcken í febrúar 2026. Birta er frábær fyrirmynd innan sem utan vallar. Dugnaður og metnaður hafa komið henni langt og munu án efa færa henni enn meiri árangur í framtíðinni.
Dagur Kári Ólafsson
Dagur Kári átti einstakt ár 2025. Hér innanlands varð hann Íslandsmeistari á bogahesti, hafnaði í 3. sæti í fjölþraut og á tvíslá og var í lykilhlutverki í liði Gerplu sem varð bikarmeistari á árinu. Á HM í Jakarta náði hann sínum stærsta árangri hingað til þegar hann tryggði sér sæti í úrslitum í fjölþraut og endaði í 24. sæti. Með þessum árangri braut hann blað í íslenskri fimleikasögu en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur fimleikamaður nær þessum árangri. Hann keppti einnig á EM í Leipzig og á Heimsbikarmótum í París og Oijek. Í lok árs var Dagur Kári valin Fimleikakarl ársins hjá Fimleikasambandi Íslands.








