Efla tómstundastarf eldri borgara

Á myndinni má sjá starfsfólkið sem mun koma til með að sinna verkefninu í sumar. frá vinstri Ómar Freyr Kristjánsson, Katrín Björg Hjálmarsdóttir, Halla Sigríður Ragnarsdóttir, Arnar Hugi Birkisson, Anna Karen Ágústsdóttir, Emilía Einarsdóttir og Tinna Rós Finnbogadóttir.

Kópavogsbær hlaut nýverið styrk frá Félagsmálaráðuneytinu til að auka tómstundastarf fullorðinna í ljósi Covid-19.  Öldruðum sem hafa einangrast verður boðinn einstaklingsbundinn stuðningur til að auka virkni utan heimilis. Tengsl verða mynduð með heimsóknum, símtölum og innlitum í gegnum spjaldtölvur. Í framhaldi verða einstaklingar studdir í að sækja þá virkni sem þeir kjósa. Markmið hópastarfsins er að gera einstaklinga örugga við að sinna þeim tómstundum sem þeir kjósa eftir langt tímabil af heimaveru.

Alls verða fimm starfsmenn ásamt verkefnastjóra sem munu halda utan verkefnið í sumar. Einnig er verið að undirbúa samstarf við félagasamtök í bænum. Með því móti mætti bjóða upp á fjölbreytta hópa og starf sem hentar einstaklingum með ólíkar þarfir. Öll þjónusta, svo sem ferðakostnaður, aðgangseyrir, matur og skemmtun verður þátttakendum að kostnaðarlausu á meðan verkefninu sendur, þar sem kostnaður getur hindrað þátttöku. Sambærilegt starf hefur ekki staðið öldruðum til boða hingað til og er því um nýjung að ræða. 

Umræðan

Fleiri fréttir

Gnitaheiði er gata ársins

Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi

Flautukórinn í frægðarför

„Við komum heim með fullt af gulli, silfri og bronsi rétt eins og á Ólympíuleikunum,” segir kampakát Pemela De Sensi, flautukennara Tónlistarskólans í Kópavogi. Flautukór kórsins lagði nýverið Sikiley á

Líf og fjör á Hamraborgarhátíð

Agnes Ársælsdóttir er myndlistarmaður og sýningarstjóri Hamraborgarhátíðarinnar í ár. Agnes útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2015 en stundar nú nám í sýningastjórnun við Háskóla Íslands. Agnes sýndi

Gunnar Helgason.

Bókasafn Kópavogs í haust

Haustið ber með sér rútínu, kertaljós og appelsínurauða tóna, en á Bókasafni Kópavogs er dagskráin að fara í gang með vinsælum viðburðum fyrri ára í bland við nýja og spennandi

Gamlar fréttir úr sarpinum

OLYMPUS DIGITAL CAMERA
karsnesskoli
Meistarinn
17juni74
Screenshot-2022-09-28-at-23.26.45
2015 Hverfafélag Smárahverfis
IMG_20140507_110830
Birkir-Jon-Jonsson
Bílar við sundlaug Kópavogs