Einar Jóhannes Guðnason verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi.
Þetta er niðurstaða uppstillingar á vegum Kópavogsdeildar Miðflokksins, en vinna við uppröðun á framboðslista fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar hefur staðið yfir að undanförnu.
Einar Jóhannes er 32 ára og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu sem rekstrar- og sölustjóri til 8 ára, hjá eloomi, Maze og síðast 50skills. Hann er giftur Guðfinnu Eiríksdóttur og fagna þau 12 ára brúðkaupsafmæli í október, saman eiga þau Davíð Guðna sem er tveggja ára.
Innan Miðflokksins kom Einar Jóhannes að því að endurvekja ungliðahreyfingu flokksins sem er enn í örum vexti ásamt því að sitja í stjórnum Miðflokksdeildar Kópavogs, stjórn Suðvesturkjördæmis og í nefnd um innra starf flokksins. Þá vakti öflug innkoma hans sem varaþingmanns mikla athygli í fyrrasumar.
„Það er ákall frá Kópavogsbúum að borgaralegt afl með skynsama stefnu fái sæti við borðið. Íbúar vilja ekki þá þéttingu sem er boðuð, Borgarlínu í óbreyttri mynd og kalla foreldrar skýrt eftir langtímalausnum í leik- og grunnskólamálum. Að þessu og mörgu fleiru mun Miðflokkurinn vinna og skýra nánar innan tíðar þegar stefnuskráin verður birt“ segir Einar.
Miðflokkurinn í Kópavogi mun tilkynna um efstu fimm sætin fyrir komandi kosningar í næstu viku.




