Heimili í Kópavogi fá 1 Gb/s samband á afmælisári Kópavogsbæjar

Kópavogsbær og Gagnaveita Reykjavíkur undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um aukinn uppbyggingarhraða Ljósleiðarans í bæjarfélaginu. Í tilkynningu frá bænum kemur fram að allir nýir viðskiptavinir Gagnaveitu Reykjavíkur í Kópavogi munu fá  búnað sem ræður við 1 Gb/s gagnahraða. Með þessu er Gagnaveitan að koma Kópavogsbæ í fremstu röð bæjarfélaga í fjarskiptum en 64% heimila munu í lok árs hafa aðgengi að hraðasta Interneti á Íslandi. Ljósleiðaravæðingu bæjarins lýkur síðan fyrir lok ársins 2017 en þá munu öll heimili í bænum hafa aðgengi að Ljósleiðaranum.

,,Þetta eru góð tíðindi á afmælisári bæjarins. Við erum ánægðir með að Gagnaveitan hafi komið til móts við óskir okkar í Kópavogsbæ um að hraða uppbyggingu ljósleiðara til þess að svara þörf okkar á hraðari gagnaflutningum. Ljósleiðarinn er lykill að skjótum og greiðum viðskiptum og samskiptum í atvinnulífi, ásamt því að vera tækni sem eykur lífsgæði almennings. Hraðari gagnaflutningar hjálpa okkur einnig við að ná markmiðum í spjaldtölvuvæðingu skóla bæjarins,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.

Það var af mikilli framsýni sem farið var í ljósleiðaravæðingu til heimila á Íslandi fyrir um 10 árum síðan. Í árslok 2015 munu 70.000 heimili á Íslandi verða tengd Ljósleiðaranum og hefur mikil ánægja verið með hann hjá viðskiptavinum. Nú þegar er Ísland á meðal tíu efstu þjóða Evrópu í dreifingu á ljósleiðara með 55% heimila sem hafa aðgengi að öflugum ljósleiðara.

,,Ljósleiðarinn er nauðsynlegur fyrir þá byltingu sem framundan er í snjallvæðingu heimila. Með ljósleiðara Gagnaveitunnar ná viðskiptavinir hröðustu tengingu á Íslandi. Þjónusta sjónvarpsveitna og miðlun myndefnis af öllu tagi kallar á öflugra og hraðara netsamband. Gagnaveita Reykjavíkur er vel í stakk búin til að svara þessu kalli og horfir enn lengra fram á veginn í þessari tæknivæðingu. Þannig fylgjum við eftir þeirri þróun sem á sér stað hjá framsæknustu gagnaveitum heims,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Umræðan

Fleiri fréttir

Indian Food Box fagnar fimm ára afmæli

Kynning Veitingastaðurinn Indian Food Box, sem nýverið opnaði í Hamraborg, fagnar um þessar mundir fimm ára starfsafmæli sínu. Þetta markar tímamót, ekki aðeins í velgengni veitingastaðarins heldur einnig í lífi

Ryki slegið í augu bæjarbúa

Aðsent Bæjarstjórinn í Kópavogi sendi frá sér fréttatilkynningu um óstaðfest sex mánaða uppgjör sveitarfélagsins. Hughrifin af fréttatilkynningunni eru að hún ein hafi skilað hundruðum milljóna króna í plús vegna hagræðingar