Auglýsing

Finnur Ingimarsson ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs

Finnur Ingimarsson.
Finnur Ingimarsson.

Finnur Ingimarsson líffræðingur hefur verið ráðinn forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs.  Alls sóttu 14 um stöðuna sem auglýst var laus til umsóknar í mars síðastliðnum. Einn dró umsókn sína til baka. Finnur var talinn hæfastur umsækjenda til að gegna starfinu.

Finnur er með B.Sc. próf í líffræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.hon. í líffræði frá sama skóla. Hann hefur starfað við Náttúrufræðistofu Kópavogs frá árinu 1993 og hefur á þeim tíma tekið þátt í skipulagningu og framkvæmd rannsóknarverkefna sem Náttúrufræðistofan hefur tekið að sér. Hann hefur einnig haft yfirumsjón með móttöku og leiðsögn hópa um náttúrugripasafn Náttúrufræðistofunnar en safnið er eina náttúrugripasafnið á höfuðborgarsvæðinu sem opið er almenningi. Hundruð skólabarna sækja safnið heim á ári hverju.

Síðasta eina og hálfa árið hefur Finnur verið settur forstöðumaður Náttúrufræðistofunnar en starfinu gegndi áður Hilmar J. Malmquist sem nú er forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands.

Náttúrufræðistofa Kópavogs er í sama húsnæði og Bókasafn Kópavogs og tilheyrir Listhúsi Kópavogsbæjar en þar undir falla einnig Gerðarsafn, Salurinn, Héraðsskjalasafn Kópavogs og Tónlistarsafn Íslands.

Náttúrufræðistofa Kópavogs starfar samkvæmt menningarstefnu Kópavogsbæjar.

Fyrirtæki

Auglýstu í Kópavogi

Náðu til 40 þúsund íbúa í blaði og á vef.

Svar innan 24 klst.

Auglýsing

Nýjustu fréttir

Miðflokkurinn kynnir framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Efstu fimm hjá Miðflokki

Efstu 5 sæti Miðflokksins í Kópavogi hafa nú verið staðfest af kjördæmastjórn. Þau eru: 1. Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður 2. Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari 3. Beitir Ólafsson,