4.800 grunnskólanemar setjast á skólabekk í Kópavogi

Margrét Friðriksdóttir, forseti Bæjarstjórnar Kópavogs og formaður Skólanefndar Kópavogs.
Margrét Friðriksdóttir, forseti Bæjarstjórnar Kópavogs og formaður Skólanefndar Kópavogs.
Margrét Friðriksdóttir, forseti
Bæjarstjórnar Kópavogs og formaður Skólanefndar Kópavogs.

Skólastarf í öllum grunnskólum Kópavogs er að hefjast og fór skólasetning fram á mánudaginn, 22. ágúst. Í Kópavogi eru starfandi níu grunnskólar með 1.-10. bekk auk þess sem Waldorfstefnan rekur einn grunnskóla. Á komandi skólaári munu rúmlega 4.800 grunnskólanemar stunda nám í Kópavogi en um 550 sex ára börn eru nú að hefja sína grunnskólagöngu. Þá hófst kennsla í Menntaskólanum í Kópavogi í síðustu viku, en um 1.400 nemar munu stunda nám við skólann á þessu skólaári. Gleðin og eftirvæntingin sem fylgir því að mæta í skólann aftur að loknu sumarleyfi gerir skólabyrjunina svo skemmtilega.

Spjaldtölvuverkefnið
Bæjarstjórn Kópavogs réðst í það viðamikla og framsækna verkefni að afhenda öllum grunnskólabörnum á mið- og efstastigi spjaldtölvur til aðstoðar við námið. Síðustu nemarnir fá sínar spjaldtölvur nú á haustdögum og miklar væntingar eru bundnar við að þessi tækni auki áhuga og sjálfstæði nemenda í námi og geri námið einstaklingsmiðaðra. Rannsóknir sýna aukna ánægju nemenda og kennara í þeirra starfi, betri nýtingu kennslustunda og meiri faglega þróun. Þá hefur það komið í ljós að þar sem spjaldtölvur hafa verið notaðar yfir lengri tíma erlendis hefur það skilað sér í betri námsárangri nemenda.

Kópurinn
Skólanefnd Kópavogs veitir árlega viðurkenningu fyrir þróunar- og nýbreytniverkefni í grunnskólum bæjarins undir heitinu Kópurinn. Mörg verkefni voru tilnefnd að þessu sinni og voru þau af ýmsum toga s.s. lestrarátak, forritun, faghópur um ADHD, þemavinna, skákkennsla, klúbbastarf, námsfús börn, gallerí, skólamenning unglinga, svo nokkuð sé nefnt. Markmiðið með viðurkenningunni er að hvetja starfsfólk grunnskólanna til metnaðar í starfi og það leynir sér ekki að þetta eru spennandi, fræðandi, hugmyndarík og umfram allt vönduð og skemmtileg verkefni sem unnin eru í nánu samstarfi nemenda og kennara.

Kaup á námsgögnum í grunnskólum
Nokkur umræða hefur verið síðustu vikur um innkaupalista grunnskólabarna og kostnað heimilanna við þá. Skólanefnd Kópavogs hefur orðið mjög tíðrætt um þetta mál og samþykkti á fundi sínum í september 2015 að hvetja foreldrafélög og skóla til að leita leiða til að halda kostnaði við innkaup í lágmarki. Nefndin áréttaði þessa samþykkt sína á fundi í vor og aftur á fundi sínum 15. ágúst sl. Ákveðnir grunnskólar í Kópavogi hafa tekið þetta mjög föstum tökum og leitað tilboða fyrir alla sína nemendur. Þá horfir skólanefnd til þess að innleiðing spjaldtölva muni lækka kostnað umtalsvert vegna minni pappírs og ritfangakaupa. Hinsegin fræðsla í grunnskólum Kópavogs Í öllum grunnskólum bæjarins fer fram fræðsla um kynhneigð þar sem lögð er áhersla á virðingu fyrir fjölbreytileika fólks með sérstakri áherslu á kyn, kynhneigð og kynvitund. Á fundi bæjarstjórnar var samþykkt að auka vægi hinsegin fræðslu í skólum bæjarins og var settur á stofn starfshópur um málið. Hópurinn hefur lagt til aukna fræðslu fyrir starfsfólk skólanna, sem fram fer nú á haustdögum. Einnig að áætlun um hinsegin fræðslu verði í skólanámskrám allra grunnskólanna og loks að nemendur í 8. eða 9. bekk fái fræðslu frá utanaðkomandi sérfræðingum í hinsegin fræðslu sem nemur einni til tveimur kennslustundum.

Umræðan

Fleiri fréttir

Höskuldur og Thelma íþróttakarl og íþróttakona ársins

Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnumaður úr Breiðabliki og Thelma Aðalsteinsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2024.  Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs í Salnum miðvikudaginn 8.

Leifur Eiríksson Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, Unnar Atli Guðmundsson plokkari, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.

Plokkari ársins

Unnar Atli Guðmundsson er plokkari ársins í Kópavogi. Bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir heiðraði Unnar í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar en þangað sækir Unnar ruslapoka fyrir plokkið, sem unnið er í sjálfboðavinnu. Unnar

Aðventuhátíð Kópavogs

Aðventuhátíð í Kópavogi verður haldin með pompi og pragt, laugardaginn 30. nóvember. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar við menningarhúsin við hátíðlega athöfn kl. 17. Jólasveinar bregða á

Fjárhagsáætlun samþykkt

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að lokinni seinni umræðu í vikunni Einnig var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2026-2028. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að