Ljóðstafur Jóns úr Vör ekki veittur í ár

Unnur Hlíf Reynisdóttir, nemandi Vatnsendaskóla, fékk fyrstu verðlaun í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs, fyrir tvö ljóð, Framtíðina og Auðlindir hafsins. Verðlaun voru afhent við hátíðlega athöfn á ljóðahátíð Salnum í dag. Hátíðin markaði jafnframt upphaf Daga ljóðsins sem standa  yfir í Kópavogi fram yfir helgi. Í öðru sæti var Ada Kozika, nemandi Álfhólsskóla, fyrir ljóð sitt Skógur í Póllandi og í þriðja sæti var Guðmundur Ólason, nemandi Hörðuvallaskóla, fyrir ljóð sitt Ský.

Á ljóðahátíðinni var upplýst að enginn hlyti ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu sinni, en þetta er í annað sinn í fjórtán ára sögu ljóðasamkeppninnar sem kennd er við Jón úr Vör sem dómnefnd ákveður að ekkert innsendra ljóða hljóti fyrstu verðlaun. Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, sagði að hún hygðist leggja til við ráðið að verðlaunaféð í ár, samtals 500 þúsund kr. legðist við verðlaunaféð að  ári.

Verðlaun hafa verið veitt samhliða í ljóðasamkeppni Ljóðstafs Jóns úr Vör og ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs síðustu fjögur árin. Í dómnefnd eru Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í almennri bókmenntafræði (formaður) og Sindri Freysson, skáld og rithöfundur. Um 180 ljóð bárust í ljóðasamkeppni ljóðstafsins. Í  rökstuðningi dómnefndar segir m.a.: „Dómnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu eftir mikla yfirlegu að meðal innsendra ljóða í ár, sem voru mun færri en á liðnum árum, væri ekki að finna ljóð að gæðum sambærilegum þeim sem hafa áður unnið þessa keppni. Dómnefndin leggur því til við Kópavogsbæ að Ljóðstafur Jóns úr Vör verður ekki veittur í ár, í stað þess leggist verðlaunaféð í ár við verðlaun næsta árs og megi því búast við öflugri þátttöku þá.“

Á ljóðahátíðinni fengu tíu aðrir nemendur viðurkenningu fyrir ljóð sín, þau: Hrafnkatla Bryngeirsdóttir , Salaskóla, Hulda M Aðalsteinsdóttir, Salaskóla, Hrönn Hjaltadóttir, Vatnsendaskóla, Eva Björg, Smáraskóla, Veigar Elí Grétarsson, Lindaskóla, Ásdís Sara Þórðardóttir, Kársnesskóla, Tristan Þór Traustason, Vatsnendaskóla, Páll Ísak, Hörðuvallaskóla, Þórdís, Hörðuvallaskóla, Ásgerður Magnúsdóttir, Álfhólsskóla, og Anna Yrsa Kolka Ásgeirsdóttir, Lindaskóla.

Á Dögum ljóðsins í Kópavogi mega bæjarbúar eiga von á því að mæta ljóðum á óvæntum stöðum, svo sem í sundi, í strætó, á húsveggjum eða á vefmiðlum bæjarins.

Myndir af verðlaunahöfum ásamt dómnefnd og formanni lista- og menningarráðs:

Kóp-ljóðahátíð-2015012130 Kóp-ljóðahátíð-2015012147 Kóp-ljóðahátíð-2015012161

Deildu:

Facebook
Twitter
Pinterest
LinkedIn

Fleiri fréttir

Kópavogsblaðið komið út

Stolt Kópavogs eru á forsíðu Kópavogsblaðsins að þessu sinni. Karlalið Breiðabliks er komið í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir að hafa slegið út Struga frá Norður-Makedóníu. Blikar leika sex leiki í

Mygla hjá velferðarsviði

Velferðarsvið Kópavogsbæjar er ekki lengur með starfsemi í Fannborg 6. Slæm loftgæði eru í húsinu sem haft hefur áhrif á starfsfólk hússins og sýna nýjustu mælingar há gildi myglugróar. Því

Stuð á Hamraborg Festival

Hamraborg Festival fór fram í lok ágúst í Hamraborg og í menningarhúsunum í Kópavogi, en Hamraborg Festival er þverfagleg hátíð með sérstakri áherslu á myndlist, staðbundin verk, gjörningalist og samfélagslega

Króníkan opnar í Gerðarsafni

Veitingastaðurinn Króníkan opnaði í sumar í Gerðarsafni. Samningur við nýjan rekstraraðila var undirritaður 11.maí, á afmælisdegi Kópavogsbæjar. Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir, systkini úr Vesturbæ Kópavogs, hafa tekið reksturinn að sér